Heimasíða Árna og Kristínar
    <language>is</language>
2018
      <description>Best að setja smá yfirlit yfir árið 2018.Þetta var ágætt ár svona í heildina. Ég var nokkuð heilsuhraustur fyrir utan hjartsláttartruflanirnar. Lítið um verki í liðum og ég gat komist það sem ég ætlaði mér í göngum og hjólatúrum. Við fórum til Tenerife síðasta vetur það var alveg frábært að komast í hitann svona um háveturinn og það væri gott ef að maður kæmist á hverju ári svona í sólina. Við fórum líka til Mancester með Steina og Svölu á fótboltaleik. Fer næst á leik hjá Sunderland verður örugglega jafn gaman.Sumarið var ágætt vorum með íbúð á Akureyri í viku. Haustið svona týpíst smalamennskur og göngur. </description>
Plast
      <description>Ég fór um daginn í göngu um fjörurnar frá Bjarnanesi að Kaldrananesi. Það sem kemur mér á óvart hvað það er að koma mikið plastrusl í fjörurnar. Ég hélt satt að segja að menn væru orðnir svo meðvitaðir um að þetta hverfur ekki þó því sé hent í sjóinn.Því miður virðist að mest af þessu plasti komi frá fiskiskipum.</description>
Myndir úr símanum
      <description>Var að setja inn myndir úr símanum mínum þannig að einhver hreifing er nú á síðunni hjá mér.Það hefur annars verið frekar rólegt hjá mér, ætlunin var að vera duglegri að hreifa mig þetta árið og reyna að borða hollari mat en það hefur ekki gengið alveg og maður rétt heldur í horfinu. Og seinni hlutinn á árinu verður þess vegna að taka alvarlegar í sambandi við hreyfingu og mataræði.Ég er búinn að vera í rannsóknum út af hjartsláttar óreglu en það hefur lítið komið út úr því, þetta er ekki hættulegt en háir mér þegar það er álag á mér og hef lítið getað reynt mikið á mig tildæmis í fjallgöngu og vinnu. Maður verður bara að gera hlutina rólegar og passa mig.</description>
Björnsdóttir
Myndir 2016
      <description>Var að setja inn fullt af myndum.Svei mér þá ef við lögumst ekki bara með aldrinum.</description>
2016
      <description>Tímabært að skrifa eitthvað hérna það er búið að vera einhvern veginn  þannig að ég hef átt erfitt með það setjast niður að skrifa. Það er samt  af nógu að taka og líklega er stærsta stundin í ár þegar bættist í  barnabarna hópinn núna í haust. En þá eignaðist Bjössi dóttur. Við erum  svo sannarlega heppin. Ég ætla að skrifa eitthvað hérna næstu daga og setja inn einhverjar myndir ef ég kann það ennþá rifjast sjálfsagt upp. Einhverjir virðast kíkja á síðuna hjá mér og er ég hissa á því vegna þess hversu langt er síðan hún var uppfærð. Farið vel með ykkur.</description>
Frá vetrinum
      <description>Tekið við ÞiðriksvallavatnÞað er leiðinlegt hvað ég er latur við að setja inn myndir hérna og blogga um hvað við erum að gera. Ég hef kannski þá afsökun að ég hafi svo mikið að gera og hafi ekki tíma og ætla að nota hana . (þessi afsökun heldur náttúrulega ekki vatni) Ég setti inn myndir sem hafa verið að safnast upp í símanum frá því í haust úr ýmsum áttum. Vonandi skýra þær sig sjálfar ef ekki þá er bara að spyrja og ég svara kannski.Annars hefur þessi vetur verið fljótur að líða og er það merki þess að ég er að eldast árin setjast á mig og maður finnur það á skrokknum sem er alltaf stirður og lengur að ná sér eftir alla hreifingu.Við keyptum íbúð í janúar, þetta er gömul íbúð og við rifum allt út úr henni og brutum nokkra veggi og höfum verið að gera hana þannig að hún hennti okkur.Tekið 23. mars á Akrafjalli</description>
Panill
Myndir
      <description>Setti inn í mynda albúmið myndir af símanum og myndavélinni. Ég var ekkert að ritskoða myndirnar setti þetta svona hrátt inn.</description>
Ótitlað
13. ágúst
      <description>Var að fá nýann síma og var að prófa hann. Myndirnar úr honum eru mun betri en úr gamla símanum og ég geri ráð fyrir að ég eigi eftir að nota hann óspart við myndatökur eins og þann gamla.Sumarfríið var fljótt eins og undanfarin ár og vorum við á töluverðum þvælingi um landið og hefðum gjarnan viljað vera lengur á ferðalagi en hitastigið á landinu bauð ekki beint uppá það.</description>
3. mai
      <description>Maturinn minn er búinn að vera líkur þessu oft í vetur.Ég var að setja inn myndir, samansafn frá vetrinum.Annars er allt gott af okkur að segja, það sem við höfum verið að gera og plana hefur allt gengið upp enda ekki við öðru að búast þegar varlega er farið.</description>
Vetur
      <description>Mikið er ég orðinn þreittur á vetrinum. Hvað er þá betra en setja sumarlega mynd af þessum fallegu og duglegu stelpum til að fá mann til þess brosa.</description>
20.1.2015
      <description>Það er sama lognmollan hérna eins og vanalega ekkert að gerast,alltaf á fésbókinni og nenni ekki að sinna þessari síðu. Það var mikið umhugsunarefni hvort ég ætti að vera að halda áfram með þessa síðu en allavega eitt ár í viðbót var niðurstaðan.Var að lesa yfir fréttirnar í morgun og stoppaði við frétt um olíusamráðið. Þetta er búið að taka 13 ár að veltast í dómskerfinu, og á sjálfsagt eftir að taka nokkur ár í viðbót. Furðulegt þetta kerfi hjá okkur, tekur alltof langan tíma. Skil ekki af hverju sumir geta þvælt mál í kerfinu þangað til þau fyrnast eða ónýtast hjá saksóknara.</description>
Hreyfing
      <description>Þessi mynd lýsir kannski svona sirka það sem ég hef verið að gera í haust. Hef reynt að ganga reglulega og svo var ég að safna skeggi sem ég gafst svo upp á vegna óhreininda uppi í vinnu en það var gaman að þessu og fólk horfði svona skringilega á mig þegar maður er öðruvísi en vanalega.Það gengur allt svona sinn vanagang og er það sennilega ástæðan fyrir því hvað síðan breytist sjaldan. Svo náttúrulega fésbókin, ætla að fara að verða duglegri við að setja eitthvað hérna fyrir ykkur sem kíkið þó annað slagið.Farið vel með ykkur. </description>
Haustið
      <description>Duglegar að taka upp rófur.Ætluðu ekki að borða þær beinnt úr garðinum.Hjá ættarskáldinu.Gamalt og nýlegra.</description>
Stúlka
      <description>Nýasti fjölskyldumeðlimurinn kom í heiminn í gærkveldi 6. október. Það verður sjálfsagt eitthvað fjör þegar hún eldist. Það er frábært að vera orðinn 6 barna afi og öll eru þau jafn frábær.</description>
Sunderland 
      <description>Spurning hvort Kristín sé nokkuð hrifinn af þessari mynd.</description>
Frændi minn
      <description>Gabríel að fá góð ráð frá Gunnari frænda sínumSet inn myndir af frænda mínum sem féll frá um síðustu helgi. Kynni mín af honum voru allt of lítil en við fórum þó í ferð til hans fyrir fimm árum . Það er eitthvað sem maður ætlaði alltaf að endurtaka það er eins og það er, stundum forgangsraðar maður vitlaust. </description>
Veiðar
Myndir
      <description>Setti inn fullt af myndum frá sumrinu.</description>
Getur verið erfitt að standa uppúr stólnum
      <description>Jæja er farinn að reyna að liðka mig</description>
Ungarnir
Í soðið
      <description>Fór og náði mér í fisk í matinn. Fiskur með hamsatólg, rúgbrauði og síld í kvöldmatinn.</description>
Myndir
      <description>Flott mynnsturBúinn að taka til.Eða hvað.</description>
Þiðriksvallavatn
      <description>Við Björn fórum í siglingu á vatninu á annan í hvítasunnu. Flott ferð hjá okkur en róðurinn tók aðeins í handleggina. Myndir í albúminu.</description>
Úrslit
      <description>Jæja svona er maður alveg út úr kú skil ekki neitt og veit ekkert hvað er að gerast í kringum mann. Þannig líður mér núna þegar ég les úrslit kosninganna sem fóru fram í gær. Ég bara skil þetta ekki, hvað er í gangi. En allt í lagi svona er þetta blessaða lýðræði og þjóðfélagið sem við búum í. Stundum finnst mér að fólk geri sér ekki grein fyrir því hversu verðmætt atkvæðið er og hvaða ábyrgð fylgir því.Jæja er líklegast bara tapsár. </description>
Bátur
      <description>Fleiri myndir í albúmi.</description>
Geirmundartindur
      <description>Fór fyrstu ferðina uppá Geirmundartind á árinu í dag. Ég var 51 mínútu upp og er ég þokkalega ánægður með það enda er ég ekki búinn að vera nógu duglegur að hreyfa mig.</description>
Göngutúrinn í gær
      <description>Myndir teknar á símann</description>
Loksins komnar 20 ferðir
Gleðilegt sumar :)
      <description> Góðann daginn gott fólk ;)Hérna kem ég inn í annað sinn og nú kemur savolítið af því sem hefur verið að gerast í mínu/okkar lífi seinustu daga.  En maður getur ekki sett allt hérna því ég veit að margir geta lesið þetta og það sem einu sinni hefur verið sagt og skrifað hérna inni á vefnum er ekki aftur tekið og þá er að vanda sig.Við fluttum inn í nýja Skjólið okkar 23 mars"14 og allt svona að verða tilbúið eins og hægt var Árni er búinn að vinna allveg standslaust til að svo gæti orðið og í öllu fríinu sínu hefur leiðin legið norður í Skjólið, já við höfum verið dunda okkur við að mála, smíða, parkettleggja og fínesera og laga allt eins vel og hægt er og útkoman er orðin svo fín hjá okkur, já allavega að mínu mati. Við erum búin að selja "gamla" titla Skjólið okkar og það er á leið heim til baka á Drangsnes og svo bíðum við eftir að það fari allveg. Nú síðustu daga hefur pallurinn í kringum litla húsið verið rifinn og búið að gera pall út við nýja húsið. Litli kofinn = vinnuskúrinn var færður og hann Ninni kom og hjálpaði okkur við að færa hann á sinn stað, við erum líka búinn að láta setja niður steininn fyrir flaggstöngina sem kemur bráðum, og færa allt ramagn af gamla húsinu inn svona er nú staðan hjá okkur allt að smella saman djö..dugnaður í okkur ;)Svo nú getur maður rennt sér í sveitasæluna án þess að vera alltaf upp á einkverjum sem er svo sem allt í lagi af og til en ekki til lengdar.Um miðjan jan sagði ég upp vinnu minni við Sambýlið á Laugarbraut 8, þar er ég búinn að vinna í 10 ár, með mörgu allveg frábæru fólki og takk fyrir samstarfið ;)Ég sótti um fasta vinnu inn á Höfða sem er eina Dvalarheimilið hérna á Akranesi og ég byrjaði um 15 apríl en er eingöngu í afleysingju sem sagt í sumarvinnu og ekki kominn með fasta vinnu, það kemur allt í ljós þegar nær dregur haustinu hvernig staðan verður hjá mér, ég vona nú að ég fái einhverja fasta % eða vona það svo sannarlega, þá er bara að halda áfram að leita ef svo verður ekki, ég hef nú pínu áhyggjur af þessu en held í vonina, mér líkar þetta svo vel sem komið er  ;) Ég var að óska eftir smá sumarfríi sem ég fékk frá 20 júní - 5 júlí já á launalausu úff svona er nú það bara, við rúllum okkur eitthvað saman á rúntinn á skemmtilega staði í sumarfríinu okkar eða verðum í Skjólinu okkar þetta er allt svo fljótt að líða ;)Svo nú kemur röfl um fitupúka: Ég hef verið að rembat enn eina ferðina við fitupúkann í mér meiri leiðinda púki sá þarna en nú er umm að gera að taka á öllu sem í mínu valdi stendur og gera eitthvað í málinu, guð hvað þessi púki er farinn í mínar fínustu taugar og ég löngu kominn með upp í kok af honum,  því þessi púki er plága og mér líður núna allveg ömurlega ílla af honum bæði líkamlega og andlega og á oft ekki til eitt einasta orð yfir þessum púka, já þetta er væll en dauðans alvara samt......svo nú þarf ég hjálp já hjálp eina ferðina enn með jæakvætt hugarfar og mikin styrk frá mínu fólki að það standi með mér í að berjast við fitupúkann, því hann vil ég burt ...!Það er allt gott að frétta af Margeiri honum líkar svo vel að vera inn á Nesvöllum og heldur betur nóg að gera hjá honum, maður getur eigilega ekki komið til hans á virkum dögum fyrr en eftir kl 17 þá er hann heima við eftir þann tímann hahaha allveg magnað og svo frábært hvað honum líður vel þarna , en svo á helgum er lokað inn í samveruna og þá er hann heima við eða á röltinu um bæinn já bara brattur sá gamli sem betur fer. Það er að fjölga hjá okkur barnabörnunum vúhú hún Ásdís Birna á von á sér í byrjun okt já þá eru barnabörnin okkar orðin 6 og geri aðrir betur hahaha við svo montinn og spenntust að fá þessa litlu yndislega gullmola í heiminn ;) Annars af börnunum okkar er allt svo gott að frétta sem betur fer ;)Jæja þetta er búið að vera svolítil saman tekt hjá mér ég kem svo einhvern tímann seinna og blogga meira jæja elskurnar farið varleg og vel með ykkur öll bið að heilsa ;)Áfram LIVERPOOL berjast til síðustu stundu !!!Pollapönk er áfram í Erovisíon vó en flott hjá þeim !!!Kær kveðja Kristín Steingrímsd.</description>
Kvöld í Skeljavík
26.4.2014 12:10
Aðeins í áttina að vorinu
      <description>Það er ekki mikill munur á síðan 6. apríl en þó heldur grænna.Séð niður á bæ þingmannsins.Snyrtilegt bú hjá honumÞað er ennþá vetrarlegt að sjá inní Hvalfjörð.</description>
Ferð nr. 16 á árinu
      <description>Þau eru byrjuð að grænka túnin sunnan við Akrafjallið. </description>
Smá hugleiðing
      <description>Það er ekki mikið sem hefur verið skrifað hérna undanfarið, en það er ekki samasem að ekkert sé að gerast hérna hjá okkur. Ég er búinn að vera að vinna í húsinu okkar fyrir norðan og erum við flutt inní það, þó er ekki búið að tengja vatnið inn en það kemur allt með tímanum.Ég er loksins farinn að getað hreyft mig aftur en löppin er ekki búin að vera nógu góð eftir aðgerðina í haust en þetta er allt að lagast sem betur fer því ég þoli sársauka mjög illa og er mjög illa við verkjalyf. Svo svona smá í restina.Finnst ykkur ekki skrýtið að efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar byggist á því að nota sparifé almennings til að borga niður forsendubrestin ?Og fréttir frá Englandi forsætisráðherra þeirra berst gegn vindmyllum vegna sjónmengunar, á sama tíma sést ekki til helstu kennileyta í London vegna loftmengunar.es.ég slökkti á fésbókinni hjá mér og veit ekki hvort eða hvenær ég fer þarna inn aftur.</description>
9. mars
      <description>Það er ekki mikill snjór á Hólmavík núna.Vanntar alla skafla í kringum húsið. Og hún er orðin stór litla hríslan.</description>
Helgarferð
      <description>Það er ekki mikill snjór í kringum húsið okkar í SkeljavíkinniAðeins inni, erum byrjuð að stilla upp milliveggjum.Ég fór norður um síðustu helgi og fékk Ómar til að hjálpa mér að flota gólfið og stilla upp fyrir milliveggjum. Þetta gekk vel og nú er komin mynd á þetta allt eins og það á að vera.</description>
Mánudagsmorgunn
      <description>Það er sjaldgæft á þessum bænum að við hjónasettið séum sofandi fram á klukkan 10 á morgnanna en það gerðist í morgunn. Þetta er svakalega ljúft en maður hálf skammast sín samt, sem er náttúrulega enginn ástæða til.Annars er allt búið að vera gott að frétta af okkur ég náði að fara 5 ferðir á Háahnjúk í síðustu viku sem gerir samtals sirka 2750 metra hæð.Gabríel, Ásta Kristín og Ásrún Magnea voru hjá okkur um helgina og naut hún Kristín sín vel við það að hafa þau hjá sér. Og mikið er það ljúft að fá litla handleggi um hálsinn þegar maður kemur heim, er nokkuð betra en það? Jæja nokkuð gott í bili farið vel með ykkur.</description>
Árið 2013
      <description>Hæ og gleðilegt ár 2014 !!!Þar kom að því að ég Kristín St frekjaðist hingað inn til bóndans míns hemmm það er nú bara þannig að það er búið að loka allveg fyrir blogcentral sem ég skrifaði inn á á sínum tíma og ég sakna þess að geta ekki skoðað það maður ætti kannski að hringja í þá þar en sjáum til, já því ekki að deila svona sögum, myndum og fleiru skemmtilegum ferðum og fullt af bulli ;)  svo deilum við næstum því öllu sem er að  gerast í þessari frábæru fjölskyldu okkar hjóna sem við erum svo stollt af. Hérna kemur svo smá upprifjun fyrir síðasta ár,  Þannig var nú að síðasta ár byrjaði með erfiðleikum og söknuði og eftirsjá náinna ættingja við/mistum hana Lindu okkar frá Hveravík þessi elska sem fór allt of snemma frá okkur, blessuð sé minning hennar. Svo mistum við/ég hana móðir mína Ástu Bjarnadóttir frá Stað 13 febrúar  sem alla tíð var okkar stoð og stitta við hliðina á mér /okkur í þessari fjölskyldu, elsku mamma ég sakna þín á hverjum degi og hugsa oft um þig blessuð sé minning þín mamma mín. Þar kom að því að með mikilli hugsun um hvernig við ætluðum svo að hafa þetta blessaða ár sem byrjaði með sárum söknuði,,,,,, ég var búin að sækja um á Sjúkrahúsinu á Hólmavík sem ég fékk svo vinnu við í um 3 mánuði sem voru svo fljótir að líða og allveg yndislegur tími.Ég fór í margar gönguferðir upp um fjöll og dali og inn í sveitina mína Stað svo í sund á Hólmavík og á Laugarhóli og margt fleira skemmtilegt sem ég gerði þar og ræktaði garðinn. Sumarið fyrir norðan var mjög gott og góður afli barst að landi Makríll í gulli fyrir margann sjóarann. Árni kom svo reglulega norður í sínum fríum úr vinnu, en hann var svo í seinna sumarfríinu og ég líka :) Við fórum lika í gott ferðalag út um allar trissur.Árni og ég lögðum hugann í bleyti og uppskárum við hjón að reysa heillt sumarhús upp á met tíma það held ég nú bara " við ofur duglega fólkið "eins og sagt var hahaha......auðvitað með góðravina hjálp og samsettri fjölskyldu annað var ekki hægt, þegar maður byrjar á svona stóru verkefni þá verður að vera góð sammvinna í hópnum okkar með hjartans þökk fyrir allir sem komu að verkefninu okkar og upp skárum við þetta svakalega fallega reysulega hús með frábærum húsasmíðameistara honum Ómari frá Þorpum :) við höfum aðeins elst  sem að sjálfsögu er eðlilegt og allir hinir líka, ömmu og afa börnin Gabríel orðinn 7 ára og er kominn á 8 ár, Daníel Bergmann 6 ára og komin á 7 ár, Ástríður Kristín 3 ára og komin á 4 árið, Ásrún Magnea og Valgerður Ósk 1 árs og komnar á 2 árið ó já það er svo fljótur að líða þessi tími og bara allt í blóma :) Vinnan byrjaði svo hjá okkur aftur í haust sem leið, við tókum því rólega og erum byrjuð að undirbúa söluna á litla Skjólinu okkar í Skeljavík allt að gerast þar og kemur í ljós með komandi ári hvernig það gengur, síðan erum við farin að hugsa um hvernig við ætlum að byrja inni í nýja húsinu okkar og allt að gerast þar búið að einangra alla veggi,loft og plasta erum að stefna að leggja í gólfið og setja upp grindina ó já allt að gerast en blogga seinna um það :)Í nóvember tókst svo Bjarna bróðir að hjálpa Margeiri fóstra okkar að selja gamla húsið, og sá gamli þurfti að pakka niður á met tíma, ég fór nokkrar ferðirnar suðureftir til að pakka niður og henda dóti sem var orðið úr sér gengið hjá þeim, við náðum að koma Margeiri fyrir inn á Nesvöllum í Keflavík sem er 60+ íbúðir allveg nýjar og svo fínar og stutt fyrir hann að kaupa sér mat og komast í félagsstarfið sem við sóttum um fyrir hann allt gekk þetta upp sem betur fer og ég svo ánægð að hann hafi fengið inn hjá þeim á Nesvöllum hann er í 3 herbergja íbúð númer 214 á 2 hæð :) Á jólunum buðum við Sillu vinkonu okkar að vera hjá okkur og líka Margeiri fóstra sem hann þáði svo já það var fjölmennt hjá okkur um jólin ég hefði viljað hafa Loft bróðir líka en það náðist aldrei í hann því miður.Tengdaforeldrar mínir Dídí og Bjössi áttu gullbrúðkaup 28 des og 50 ár liðin hjá þeim og til hamingju með þann áfanga flottu hjón :) Við hjón áttum svo silfurbrúðkaupsafmæli 31 des vó komin 25 ár síðan við giftum okkur enn hvað þessi tími hefur liðið Steini og Svala buðu okkur að vera hjá sér í bænum yfir áramótin,og þar voru allir krakkarnir komnir saman í veisluföngum og allveg yndislegum tímamótum ástarþakkir fyrir okkur :) Ég hef hér stiklað á stóru en margt fleira hefur svo sem gerst á liðnu ári með góðum kveðjum til ykkra allra og farið varlega á nýju ári .....kem svo seinna með meira bull :) Kveðja,Kristín St.</description>
Sameiginleg síða
      <description>Þar sem ég er ekki nógu duglegur að nota þessa síðu ætlar hún Kristín að hjálpa mér að nýta hana betur. </description>
Gamlárskvöld
      <description>Hópurinn samankominn heima hjá Gabríel, vanntaði bara hana Bjössa Höllu.Þetta er nú meiri mánuðurinn þessi Desember. Maður puðar við að grenna sig 11 mánuði á ári en svo kemur þetta allt til baka i Desember. Svo er helvítis veðurtíðin búinn að vera þannig að lítið er hægt að stunda alvöru hreyfingu.Annars er voða ljúft að vera inni og háma í sig smákökur og súkkulaði, allavega finnst mér það. </description>
Feministar
      <description>Það kemur mér alltaf á óvart hvað það fer fyrir brjóstið á mörgum þó einhverjar konur tjái sig um það að þeim fynnist kynjahlutfallið í stjórnum fyrirtækja og ríkisstofnana ekki rétt. Mitt álit er það að það á auðvitað að vera sem jafnast en samt verður alltaf að ráða hæfasta fólkið. Eins og störfin eru á Íslandi núna er ekki hægt að segja að þetta eða hitt sé kvenmanns eða karlmanns verk. Yfirleitt skiptir það ekki máli, karlmenn eru þó oft lunknari við að koma sér í léttari verk.Farið vel með ykkur.</description>
Nóvember
      <description>Það er enn og aftur léti í mér í sambandi við skriftir hérna. En  nóvember hefur verið svona frekar erfiður. Ég hef verið frekar slæmur í  löppinni alltaf með einhverja verki ef ég passa mig ekki. En það að vera  í öryggisskóm í vinnunni er ekki það besta fyrir bólgna fætur. Þar af  leiðandi hef ég ekki farið margar ferðir uppá Akrafjall eða bara þrjár í  nóvember. En ég hef reynt að ganga eitthvað á hverjum frídegi  annaðhvort á brettinu eða úti. Við Kristín fórum ekkert norður í nóv  og það er ekki laust við að maður sé kominn með smá heimþrá. Svo er  bara spurning hvort maður komist nokkuð fyrir jól, en það verður bara að  koma í ljós.Það var að koma rukkun fyrir þessa síðu fyrir næsta ár  og er það mikil spurning hvort það sé nokkur ástæða til að borga hana  þar sem ég er ekki nógu duglegur að sinna þessu bloggi. Það er svosum  nóg sem ég gæti skrifað um en mínar skoðanir eru kannski betur geimdar  hjá mér sjálfum.  Mér finnst að ég sé ekki eltast við skoðanir annara og  nenni ekki alltaf að réttlæta það sem ég segi eða skrifa.Gömul myndNóg í bili,og farist ekki úr jólastressi.</description>
Október
      <description>Ég er alveg að skýta á mig með þessa síðu. En til þess að róa frú Kristínu verð ég að halda mig við efnið. 4. okt fór ég í aðgerð til þess að liðka uppá stóru tána og gekk aðgerðin vel og var búist við að ég yrði ca. mánuð frá út af þessu en ég fór að vinna aftur eftir rúmlega hálfan mánuð þar sem þetta gréri svo vel. Og þakka ég því að Kristín fór strax með mig eftir aðgerð í heilsusamlega loftið í Skeljavíkinni.Og þarna sat ég í sólinni með tána uppí loftið og lét mér líða vel.Einnig prílaði ég uppá þak á litla húsinu til að taka mynd.Þarna er húsið okkar fokhelt.Og það má segja það að við megum vera stolt af því sem við áorkuðum í sumar. Það er ekki hvað sízt að þakka honum Ómari og öllum vinum og ættingjum sem hjálpuðu okkur. Það er alveg frábært að eiga svona marga góða að.Og fyrir það er ég þakklátur.Jæja þetta er orðið of væmið.  Reyni að fara að verða duglegri að blogga.      </description>
Kastljós
      <description>Ég hef verið að fylgjast með kastljósi núna í vikunni. Það er mjög athyglisvert hvernig þau nálgast þetta viðkvæma mál sem er svo algengt sem er drykkjuskapur landans. Ég er mest hissa á því að fólk fáist til þess að tjá sig í sjónvarpinu um þennan veikleika sinn. En eins og þetta fólk segir er það ósk þess að þetta geti orðið einhverjum til hjálpar. Það er skrítið hvernig það er einhverskonar þöggun og réttlæting í gangi um þennan veikleika hjá fólki, réttlætingin felst í því að þetta sé gaman og nauðsynlegur hluti af skemmtuninni að drekka áfengi. Svona hugsunarhátt skil ég ekki, þó svo að ég hafi kannski ekki verið til fyrirmyndar taldi ég alltaf að áfengisneysla hjá mér væri sjálfsvorkunn og aumingjaskapur og hætti þessvegna að drekka áfengi fyrir átta árum og hefði átt að hætta mun fyrr. Það er undir hverjum og einum komið hvort það drekkur áfengi, en fólk verður að gera sér grein fyrir því að ber fulla ábyrgð á því hvað það gerir undir áhrifum. Það leiðinlegasta sem ég sé þegar ég fer á útiskemmtanir eru drukknir forráðamenn barna.Ein aðal ástæðan fyrir þessum skrifum er það að ég hef núna í sumar orðið var við það fólk er að aka eftir að hafa drukkið áfengi, og er stoltur af því að hafa einu sinni komið í veg fyrir ölvunarakstur. En það er skrýtið hvernig allir sem ég hef gert athugasemdir við hafa ekki haft dómgreind til þess að dæma um ástand sitt. Því allir hafa verið sannfærðir um að áfengisneysla þeirra hafi ekki nein áhrif ökuleikni þeirra og allir hafa trúað því að þeir séu bara búnir með einn.Það er svosem margt annað sem ég gæti skrifað um þessi mál en læt þetta duga í bili.Farið vel með ykkur því þið eruð ábyrg gagnvart ykkur sjálfum.   </description>
Ein gömul
Sumarauki
      <description>Við frændurnir fórum að ná okkur í soðið það aflaðist ágætlega og það má ekki misskilja efri myndina þannig að Timmi hafi setið frammi í stafni allan daginn og drukkið kaffi en hann dró megnið af aflanum enda með eindæmum fiskinn.</description>
Bygging og fleira
      <description>Setti inn fullt af myndum í albúmið fjölskyldan.</description>