Þá er búið að reka Bruce og löngu tímabært. Hann virtist ekki ná að láta liðið spila saman og það var kominn tími á hann. Enda er það leiðinlegt að vera með þokkalegan mannskap og ná ekki stöðugleika í liðið. En svo er spurningin hvaða snillingur tekur við Sunderland gaman væri að fá Roy Keane aftur allavega var liðið skemmtilegra meðan hann var með það.

Þessi mynd var tekin fyrir 10 dögum túnið grænt hjá Haraldi en það er víst kominn vetur núna.

Þetta er hluti af jólaundirbúningnum hjá mér að smakka kökurnar hennar Stínu. Svo fórum við í bæinn í gær og ég kíkti aðeins í boxin hjá Svölu en hún er hörku bakari líka.