Þetta er nú ljóti kuldinn dag eftir dag en það er nú sem betur fer ekki mikill vindur með þessu svo þetta er nú allt í lagi.
Við fórum á tónleika með frostrósum í gærkvöldi,það var mjög gaman og alveg er nú frábært hvað við eigum gott tónlistarfólk. Það sem kom mér mest á óvart hvað það eru rosalega margir sem taka þátt í svona tónleikum. Og þetta var í fyrsta sinn sem ég kem í Hörpuna og það er ótrúleg stærð á öllu þarna og óskandi að þetta geti staðið undir sér.
Ég var að vinna um helgina og á núna eftir tvær næturvaktir og svo kominn í helgarfrí.

Þessi var tekin í síðustu viku svona tæki sést ekki oft á götum Akraness.

Það er nú bara léti og aumingjaskapur að fara ekki í göngu í dag en svona eru sumir dagar bæti það upp um helgina.