Jæja þá er kominn tími á smá blogg. Nota tímann meðan ég bíð eftir að Gabríel komi en hann ætlar að vera hérna hjá okkur um helgina. Kristín er fyrir sunnan hún fór til að heimsækja mömmu sína.
Annars er allt eins og það á að vera hef verið duglegur að ganga, en þegar ég fór á Geirmundartind í gær var töluverð hálka og ég held ég verði að endurmeta það hvenær ég fer þarna upp því þetta er svona full glannalegt með köflum. Svo er bara að vona að þessi hláka hafi náð að hreinsa aðeins af fjallinu. Allavega það verður að skána eða ég verð að fjárfesta í broddum.
Í skólanum í dag var verið að kenna okkur að nota ritvinnsluforrit og það held að muni nýtast mér vel svona í framtíðinni. Farið vel með ykkur.