
Ég fjárfesti í þessari eðalkerru í gær. Þessi bíll er af gerðinni KIA Sportage og er árgerð 2000.
Vinnustaðakeppninni í Lífshlaupinu lauk í gær ég náði að hreyfa mig eitthvað alla dagana mismikið að vísu en meðaltalið var tæplega 90 mín á dag sem ég er ánægður með og ekki sakar að ég er aðeins léttari eftir þetta. Svo er bara að halda áfram en mikið er ég orðinn þreyttur á þessum helvítis umhleypingum, aldrei sama veðrið tvo tíma í röð.
Í morgun fór ég uppá Geirmundartind, lagði af stað í logni og lenti í rigningu, blindbyl snjókomu í logni,sólskini og svarta þoku og svo þegar ég kom niður var aftur komið logn. Ísland í dag "
Kannski var tímasetningin vitlaus en maður getur greinilega ekki treyst veðurspánni.