Heimasíða Árna og Kristínar Skoðanir okkar. |
||
21.12.2012 22:28UmferðinÉg skrapp til Reykjavíkur núna seinnipartinn. Það var svakaleg umferð í bænum og mikið af fólki í verslununum sem ég fór í. Að versla fyrir jólin er það leiðinlegasta sem ég geri og það sem pirrar mig mest er hvað fólk er tillitslaust gagnvart hvort öðru það æðir áfram og treðst og aðrir standa í hópum og það er ekki hægt að komast framhjá án þess að troðast. Ef ég fer að versla veit ég fyrirfram hvað ég vil, kaupi það og kem mér út og þess vegna voru það kannski mistök að vera að fara á þessum tíma að versla. Svo annað umferðarmenningin það er alveg sérstakt lán að fleiri séu ekki að drepa sig í umferðinni. Menn eru að taka framúr á ólíklegustu stöðum og á leiðinni suður sá ég tvö atvik þar sem ekki mátti tæpara standa og það var ekki aksturhæfileikum framúrkeyrsluökumannanna að þakka að ekki varð stórslys. Svo er annað það er mikið um að menn gefi ekki stefnuljós ég skil ekki alveg hvað er í gangi allavega Borg óttans stóð undir nafni í dag. Ég fór uppá Akrafjall í morgun þriðja ferðin þessa vikuna gott göngufæri í dag en það er búið að vera varasamt undanfarið. Svo er ég líka búinn að vera duglegur að smakka (borða) smákökur svona til að hafa jafnvægi á hlutunum. Nóg í bili, slappiði svo aðeins af þetta skiptir engu máli það koma alltaf önnur jól svo þá má alltaf gera betur. Skrifað af Árni Magnús Flettingar í dag: 283 Gestir í dag: 6 Flettingar í gær: 375 Gestir í gær: 14 Samtals flettingar: 4719 Samtals gestir: 228 Tölur uppfærðar: 17.7.2025 19:47:16 |
Eldra efni
Nafn: Árni Magnús BjörnssonFarsími: 8623287Tölvupóstfang: arnimagnus@live.comAfmælisdagur: 11.08.1962Heimilisfang: Garðabraut 45 AkranesTenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is