Gleðileg jól þið sem villist hingað inn. Það eru búin að vera doldið mikil matar jól hjá mér en eitt árið og ég er ekki að ná því að höndla allan þennan mat, kökurnar og sælgætið sem fylgir þessum árstíma. Svo er maður allt árið að vinna í því að ná þessu til baka.Svona hefur þetta oft gengið og maður lærir ekkert af reynslunni. En það er bara svo gott að sleppa sér í svona át svo það þýðir ekkert að vera að velta sér uppúr þessu. Enda fer það mér vel að vera doldið þéttur. (segir Kristín)
Hef ekki tíma til að skrifa meira í bili Kristín var að taka ís úr frystinum.