Heimasíða Árna og Kristínar Skoðanir okkar. |
||
25.04.2013 13:31Dauð atkvæðiMér finnst núna undanfarið í fréttatímum sérstaklega hjá 365 miðlum vera talað mikið og rekin áróður fyrir því að fólk kjósi ekki nýju framboðin vegna þess að þau nái ekki 5 % og nái þess vegna ekki inn manni. Mér finnst þetta ekki rétt. Allir eiga að kjósa eftir sinni sannfæringu sama hvort atkvæðið nýtist til að ná manni á þing eða ekki. Allavega er fólk búið að segja skoðun sína með því. Og ef það er enginn sem heillar mann í framboði segir maður frá því með því að skila auðu, svo einfalt er það.Það má ekki gera lítið úr lýðræðinu með því að hræða fólk frá því sem það telur rétt,og kjósa þessvegna eitthvað sem er lakara. Það er slæm þróun. Var að lesa grein eftir Matta í Húsavík í Bændablaðinu, og er bara nokkuð sammála honum. Spurning að taka vinstri græna afstöðu á laugardaginn. Skrifað af Árni Magnús Flettingar í dag: 76 Gestir í dag: 4 Flettingar í gær: 375 Gestir í gær: 14 Samtals flettingar: 4512 Samtals gestir: 226 Tölur uppfærðar: 17.7.2025 08:33:15 |
Eldra efni
Nafn: Árni Magnús BjörnssonFarsími: 8623287Tölvupóstfang: arnimagnus@live.comAfmælisdagur: 11.08.1962Heimilisfang: Garðabraut 45 AkranesTenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is