Heimasíða Árna og Kristínar

Skoðanir okkar.

21.04.2011 11:25

sumardagurinn fyrsti

Gleðilegt sumar.
Við erum á þvælingi núna fram og til baka.Það er frekar blautt fyrir norðan og það er ýmislegt sem þarf að laga kringum húsið okkar til að bæta aðgengið en það kemur.
Rafmagnið er komið inn og það er sko munur þó maður sakni þess að þurfa að hlýja Stínu.Djókur.
set inn mynd af vorinu.

18.04.2011 20:05

Rauður

Hef verið að vinna í húsbílnum ef hægt er að kalla hann það alveg innréttingalaus og notaður sem timburflutningabíll er hægt að komast neðar sem bíll,en þetta kemur allt með kalda vatninu.Stefnan er tekinn að nota Rauð meira þetta árið en í fyrra.Hvað sem verður.Ég fór með hann í skoðun í dag og fékk grænan miða, nokkur atriði sem þarf að laga ekkert stórvægilegt.
Annars vorum við að spá í að seljann en ég veit ekki skoða allt.
Að öðru ef einhverjum vanntar ljósavél getiði haft samband við mig þarf að losa mig við eina gott eintak og verður sko ekki gefins.Tek mynd af henni seinna.
Farið vel með ykkur.(á kannski að segja eins og Jónas ;passiði ykkur á myrkrinu;)

17.04.2011 17:13

Ferming

Það hefur aldeilis ræst úr þessu með fermingarveislurnar.  Ég  var að koma úr einni áðan og svo er ein í viðbót á fimmtudag.
Ég er að fara á síðustu vaktina í þessari törn á eftir, er lítið sofin og vona að það verði nóg að gera í vinnunni svo ég haldist vakandi því mér finnst hálf aumkunarvert að vera hálf sofandi inná kaffistofu hálfa vaktina.Ég tek svo vetrarfrí um páskana er heppinn að hafa pantað þann tíma í janúar. Annars er allt fínnt og ASÍ og SA eru í pásu en ætli þau taki ekki saman eftir helgi eins og önnur ástfangin pör.
Annars var gott að vita af þér frænka að þú fylgist með þykir vænt um það.
Gott í bili.

15.04.2011 15:54

Launin

Ég hef verið að velta því fyrir mér út á hvað þessar samningaviðræður milli ASÍ og SA eiga að þýða, ég get ekki skilið um hvað þessir aðilar séu að semja. Því allur málflutningur þeirra er þannig að þeir verði að vera sammála og enginn ágreiningur milli þeirra.Það eru stjórnvöld sem eru gagnaðilinn sem ég skil ekki hvers vegna má ekki breyta kvótakerfinu við hvað eru menn hræddir. Menn vissu að þjóðin á auðlindirnar og hefðu ekki átt að veðsetja fiskinn í sjónum ef þeir eru ekki borgunar menn fyrir því. Það verður alltaf að veiða fiskinn.  Óþarfi að menn sem eru hættir útgerð séu að græða á kvótabraski. Annars er það skrítið að fyrirtæki sem eru að skila hagnaði skuli ekki sjá sóma sinn í því að hækka launin hjá sínu fólki. Því er nefnilega alltaf haldið fram á tyllidögum að mannauður fyrirtækja haldi þeim uppi og sé undirstaða alls.Ég get bara ekki skilið þetta og nú á múta fólki með eingreiðslu 50.000 hver sættir sig við þetta? Við fáum þó vonandi að greiða atkvæði um samningana. En ég veit ekki hvernig þetta er, skil ekki hvernig allt er orðið og hvernig þetta gat orðið svona.
Sárast af öllu er það að það skiftir ekki máli þó skipt sé um stjórnendur í þessu þjóðfélagi, þeir eru allir eins meira segja trúðarnir í borginni umbreyttust á meðan atkvæðin voru talin í kosningunum þar. Enda er þetta ekki eðlilegt.
Ég held að við ættum að lækka launin hjá þessu fólki þannig að fólk með hugsjón og réttlætistilfinningu nái að komast að og koma sínu fram.Það verður að fara að koma fólk fram sem hefur einlægan á huga að bæta lífskjörin hérna,Því það eru nógir peningar til, þeim er bara svo misskipt milli fólks.
Farið svo vel með ykkur það gerir það enginn betur en þið sjálf.

12.04.2011 09:52

Klaki

Fórum norður um helgina ætluðum að taka það rólega en nóg að gera. Það var enn klaki í jörð kringum húsið okkar og vatnið freðið. Þannig að ég þarf að gera eitthvað til þess að koma í veg fyrir það í framtíðinni annars var þetta mjög fínnt og gott að vera þarna í kyrrðinni.Við heimsóttum helstu staði og fórum í göngu upp í borgir en Kristínu finnst það fíluferð norður ef hún kemst ekki að kvitta í bókina sem er þar.Það var spennandi ferð suður á sunnudaginn hífandi rok og það tók verulega í bílinn á leiðinni bara gaman fannst mér en ekki allir sammála um það.Förum sennilega aftur norður eftir næstu helgi en sjáum til með það.

06.04.2011 11:21

Einn af þessum dögum

Er að fara á næturvaktir í kvöld og annað kvöld. Er búinn að hafa það náðugt í dag hef einhvern vegin ekki kraft í mér til að fara í göngu í dag, leiðinda veður eða réttara sagt allskonar veður. 
Fór að kjósa í morgun, mér finnst að fólk eigi að kjósa eða skila auðu eftir því sem fólk vill enda skylda í lýðræðisþjóðfélagi eins og Íslandi. Svo er annað mál ef fólk kemst ekki af einhverjum ástæðum. Annars er ég ekki sáttur við þessar kosningar finnst að þingmennirnir eigi að taka svona ákvarðanir. Það var meiri hluti þjóðarinnar sem kaus þá (þó ég hafi ekki gert það skilaði auðu þá enda bara kjánar í framboði) en meirihlutinn ræður og þar stendur hnífurinn í kúnni. Annars get ég ekki ráðlagt neinum hvað sé best að kjósa enda báðir kostir slæmir.
Ég hef verið að vinna með hinum og þessum í vinnunni sem er svo sem ágætt en lýandi til lengdar er orðinn þreyttur á því að geta ekki gengið að hlutunum vísum frá degi til dags enda vil ég geta stjórnað því sem mér viðkemur eins og hægt er,ömurlegt að hafa kannski ekkert að gera stóran hluta dagsins en svo í restina er allt á síðustu stundu og maður fer óánægður heim með lélegt dagsverk.Þetta þarf ekki að vera svona en það þýðir ekki að tala um það.Það virðast allir ánægðir með það sem ég geri nema ég sjálfur.Kannski er best að loka bara á þetta og fara að mæta  með bók í vinnuna. Annars hef ég verið að skrifa niður hvað ég hef verið að vinna og hvað ég tel að megi betur fara, veit ekki hvað ég geri við það en kannski er það best geymt niðrí skúffu enda á ég víst ekki að skipta mér af málum sem mér koma ekki við.
EN ENDILEGA MUNIÐ AÐ KJÓSA

03.04.2011 18:29

30

Ég er búinn að fara 30 ferðir uppá Háahnjúk frá áramótum sáttur með það en það gerir rúmlega 2 ferðir á viku.Sem er ágætt finnst mér.Annars hefur verið rólegt hjá mér ætlaði að ganga meira um helgina en hlutirnir fara oft öðruvísi en maður ætlar sér.Ég hef verið að vinna aðeins í Bensanum og er að hugsa um að setja hann á skrá seinna í apríl ef ég verð búinn að laga hann.Annars er bara rólegt er að vona að ég fái rafmagn í bústaðinn fyrir páska ef ekki þá hefur það bara sinn gang.Er búinn að bíða frá því í nóvember eftir lóðaleigusamningnum en ekkert gerist .Skil ekki hvað er að gerast í þessu máli.

27.03.2011 18:54

Ferming

Fermingarveisla í dag hjá Söndru frænku minni.Var að vinna fram á hádegi en var mættur í veislu kl.2 verð að segja það að ég hef verið duglegur að borða í dag, þó Kristín hafi neitað að elda kvöldmat taldi mig hafa fengið nóg í dag sem er sennilega rétt.Fór uppá Akrafjall seinnipartinn til að gekk mjög vel en mikil drulla á göngustígnum, farið að vora vona ég.

26.03.2011 21:28

Börnin

Varð að setja þessa mynd inn sem Kristín tók í dag.Það var í afmælinu hans Gabríels sem varð 5 ára í dag.

18.03.2011 09:40

18.3.

Það er orðið doldið langt síðan ég hef skrifað hérna að vísu skrifaði ég í síðustu viku en þurrkaði það út eftir nánari umhugsun.Reykvíkingarnir þau Kristín og Gabríel voru hjá okkur á síðustu helgi og það er eins gott að nota tímann með þeim þar sem tíminn líður það hratt og börnin verða fullorðin áður en maður veit af.Það er búið að bjóða okkur í eina fermingarveislu þetta árið það er hjá henni Söndru Þuríðardóttur og Björgvins.Annars hélt ég að þær yrðu fleiri en eitthvað er ég að misskylja út á hvað kristindómurinn gengur.En mitt lífsmottó er það:Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig.Oftast gengur það vel en ef það klikkar er það oftast mér sjálfum að kenna.Svo það er bara að taka á því þegar betur stendur á.
Það eru leiðinda umhleypingar með miklum vindi og frosti á milli og ég er drulluhræddur við kvef þar sem síðustu ár þegar ég hef kvefast hef ég verið lengi að ná mér.Og þess vegna hef ég ekki verið eins duglegur að fara á fjallið og ég hefði viljað.
Nóg í bili farið vel með ykkur.

01.03.2011 13:31

Ótitlað

Jæja þá er síðasti unginn floginn úr hreiðrinu og þó ekki hafi nú farið mikið fyrir honum finnst manni hálf tómlegt þegar rúmið hans er farið því það merkir að við erum tvö orðin eftir.En þetta venst kannski enda ekki komin nema 19 tíma reynsla á þetta.Er búinn að vera duglegur að hreifa mig enda ekkert þarfara að gera.Tók nokkrar myndir við höfnina áðan ekkert sérstaklega góðar enda snjómugga sem truflar.Ég kann ekki að setja nema eina mynd í einu á forsíðuna en það kemur eins og annað. Set inn mynd hérna af sementsverksmiðjunni.

24.02.2011 21:22

Skip

Fór í göngu áðan niður að höfn og ætlaði að taka myndir af loðnuskipunum en myndavélin mín hentar ekki vel í myrkri. Fer einhverntima í björtu og tek nokkrar myndir af bátunum í höfninni. En þó ótrúlegt sé hef ég ekki tekið margar myndir af bátunum hérna.Fann eina frá Drangsnesi sem ég sýni ykkur.

22.02.2011 20:50

Ganga

Jæja þá er skráningunni í lífshlaupinu lokið það var síðasti dagurinn í dag.Ég fór 12 sinnum í göngu á þessum 3 vikum alls 1335 mínútur sem er bara ágætt finnst mér. Það var ákveðið í vinnunni að fara saman í göngu á Akrafjallið í gær það mættu fáir og sennilega fer ég frekar einn en að fara aftur með þeim sem skipulögðu þetta enda var þessi ganga hálf einmanaleg en hún fer í reynslubankann. Fór svo á Háahnjúk seinnipartinn var 40 mínútur upp 65 mínútur báðar leiðir sem er gott miðað við færð hjá mér.

17.02.2011 22:36

Fundur

Var að koma af fundi í bíóhöllinni sem verkalýðsfélagið stóð fyrir.Vilhjálmur fór yfir stöðu kjaramála og mæltist honum vel að  enda strigakjaftur ef hann vill það viðhafa.Þetta er skrítin staða ef forysta verkalíðshreyfingarinnar er ekki að vinna fyrir okkur og hafa okkar hagsmuni í fyrirrúmi.En aftur og enn hver kaus þetta lið til forystu?
Lýðræðið er alltaf að koma í bakið á okkur enda er vaninn og óttinn við breytingar sterkasta vopn forustunnar í þessu landi.Okkur er sama hvernig ástandið er bara ef það versnar ekki,við vitum hvað við höfum en ekki hvað við fáum.Ef allt færi á versta veg gætum við jafnvel fengið fleiri Jóna Gnarra og það vill enginn. Nóg í bili
Flettingar í dag: 39
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 375
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 4475
Samtals gestir: 226
Tölur uppfærðar: 17.7.2025 08:12:08

Nafn:

Árni Magnús Björnsson

Farsími:

8623287

Afmælisdagur:

11.08.1962

Heimilisfang:

Garðabraut 45 Akranes

Tenglar