Heimasíða Árna og Kristínar

Skoðanir okkar.

20.01.2015 11:45

20.1.2015


Það er sama lognmollan hérna eins og vanalega ekkert að gerast,alltaf á fésbókinni og nenni ekki að sinna þessari síðu. Það var mikið umhugsunarefni hvort ég ætti að vera að halda áfram með þessa síðu en allavega eitt ár í viðbót var niðurstaðan.

Var að lesa yfir fréttirnar í morgun og stoppaði við frétt um olíusamráðið. Þetta er búið að taka 13 ár að veltast í dómskerfinu, og á sjálfsagt eftir að taka nokkur ár í viðbót. Furðulegt þetta kerfi hjá okkur, tekur alltof langan tíma. Skil ekki af hverju sumir geta þvælt mál í kerfinu þangað til þau fyrnast eða ónýtast hjá saksóknara.


07.12.2014 10:46

Hreyfing






Þessi mynd lýsir kannski svona sirka það sem ég hef verið að gera í haust. Hef reynt að ganga reglulega og svo var ég að safna skeggi sem ég gafst svo upp á vegna óhreininda uppi í vinnu en það var gaman að þessu og fólk horfði svona skringilega á mig þegar maður er öðruvísi en vanalega.
Það gengur allt svona sinn vanagang og er það sennilega ástæðan fyrir því hvað síðan breytist sjaldan. Svo náttúrulega fésbókin, ætla að fara að verða duglegri við að setja eitthvað hérna fyrir ykkur sem kíkið þó annað slagið.Farið vel með ykkur.

15.10.2014 20:45

Haustið




Duglegar að taka upp rófur.



Ætluðu ekki að borða þær beinnt úr garðinum.



Hjá ættarskáldinu.


Gamalt og nýlegra.

07.10.2014 14:41

Stúlka





Nýasti fjölskyldumeðlimurinn kom í heiminn í gærkveldi 6. október. Það verður sjálfsagt eitthvað fjör þegar hún eldist. Það er frábært að vera orðinn 6 barna afi og öll eru þau jafn frábær.

26.09.2014 09:00

Sunderland



Spurning hvort Kristín sé nokkuð hrifinn af þessari mynd.

24.09.2014 21:38

Frændi minn



Gabríel að fá góð ráð frá Gunnari frænda sínum


Set inn myndir af frænda mínum sem féll frá um síðustu helgi. Kynni mín af honum voru allt of lítil en við fórum þó í ferð til hans fyrir fimm árum . Það er eitthvað sem maður ætlaði alltaf að endurtaka það er eins og það er, stundum forgangsraðar maður vitlaust.

04.09.2014 19:50

Veiðar

04.08.2014 20:05

Myndir






Setti inn fullt af myndum frá sumrinu.

05.07.2014 14:15

Getur verið erfitt að standa uppúr stólnum





Jæja er farinn að reyna að liðka mig

30.06.2014 20:49

Ungarnir









12.06.2014 12:08

Í soðið





Fór og náði mér í fisk í matinn. Fiskur með hamsatólg, rúgbrauði og síld í kvöldmatinn.

11.06.2014 22:42

Myndir



Flott mynnstur



Búinn að taka til.




Eða hvað.


10.06.2014 10:00

Þiðriksvallavatn



Við Björn fórum í siglingu á vatninu á annan í hvítasunnu. Flott ferð hjá okkur en róðurinn tók aðeins í handleggina. Myndir í albúminu.

01.06.2014 09:43

Úrslit

Jæja svona er maður alveg út úr kú skil ekki neitt og veit ekkert hvað er að gerast í kringum mann. Þannig líður mér núna þegar ég les úrslit kosninganna sem fóru fram í gær. Ég bara skil þetta ekki, hvað er í gangi. En allt í lagi svona er þetta blessaða lýðræði og þjóðfélagið sem við búum í. Stundum finnst mér að fólk geri sér ekki grein fyrir því hversu verðmætt atkvæðið er og hvaða ábyrgð fylgir því.
Jæja er líklegast bara tapsár.

25.05.2014 20:33

Bátur



Fleiri myndir í albúmi.
Flettingar í dag: 39
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 375
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 4475
Samtals gestir: 226
Tölur uppfærðar: 17.7.2025 08:12:08

Nafn:

Árni Magnús Björnsson

Farsími:

8623287

Afmælisdagur:

11.08.1962

Heimilisfang:

Garðabraut 45 Akranes

Tenglar