Heimasíða Árna og Kristínar Skoðanir okkar. |
||
29.11.2011 14:34Loksins snjórJæja þá er veturinn kominn og aðventan byrjuð, það er allt hvítt af snjó hérna og í morgun bar ég á gönguskíðin og fór síðan á skíði. Ég bjó til hring uppá golfvelli ca. 1 km. og skíðaði í einn og hálfan tíma það er hálf skrítið að fara sama hringinn aftur og aftur soldið einhæft . En þetta er fín hreyfing og það er aðal atriðið. Allavega betra en hlaupabrettið. Annars er lítið um að vera aðeins byrjaður að undirbúa jólin sem fellst í þvi að smakka smákökur og bíð núna eftir fleiri sortum til að prófa en Kristín er full róleg í bakstrinum, með þessu áframhaldi nær hún ekki einusinni tíu sortum en það er algjört lámark. Er það ekki ? Ætlaði að setja inn mynd en eitthvað ekki í lagi, eða bara klaufi. 19.11.2011 21:04HeimaslóðirKomum í gær hérna norður og mestur tíminn hefur farið í útiveru en það er stuttur birtutíminn á þessum árstíma. Og um að gera að nýta hann sem bezt ég fór í dag í göngu hérna uppá Skeljavíkur fjallið og tók fullt af myndum sem ég ætla að reyna að koma inná albúmið en er ekki viss um að það takist fyrr en eftir helgi, einnig tók ég myndband sem kemur sem fyrst. Þessi er í Kálfaneslæknum. 13.11.2011 20:12Yfirlit vikunnarSama sagan er latur að skrifa hérna.Ég er búinn að vera duglegur að hreifa mig í þessu fríi er búinn að fara fjórum sinnum uppá Akrafjall síðustu fimm daga og það er kominn þreyta í vöðvana nú hvíli ég tvo daga meðan ég er í vinnunni og verð orðinn góður.Það er galli við mig hvað ég er latur við að teija eftir göngur og stundum er erfitt að koma sér af stað í næsta skipti. En þetta hefst alltaf einhvern veginn.Það er alveg sama hvað ég hreyfi mig mikið ég léttist ekki um gramm er alltaf á svipuðum stað á viktinni, oft verið að spá í það hvernig ég liti út ef ég gæti ekki hreyft mig. Það er allavega gott að hafa heilsu til að hreyfa sig og gera það sem mig langar til. Ég fór í munnholsaðgerð á fimmtudaginn og er að jafna mig en verð að éta verkjalyf og bólgueyðandi töflur eins og ég er hrifinn að því meðan þetta er að gróa, sem er allt á réttri leið. Svo fórum við Daníel að hjálpa pabba að smala í dag. Daníel stóð sig vel, svo enn fjölgar í smalahópnum enda er þetta skemmtileg og hressandi hreyfing. Ég hef verið latur að taka myndir undanfarið en ég nenni ekki að koma með sama myndefnið dag eftir dag. 07.11.2011 13:57RigningSkyldi þessi vera ennþá lifandi? Þetta eru meiri umhleypingarnar í veðrinu núna þessa dagana en ég vona að þetta fari að lagast kominn tími til. Fór í göngu í morgun í ágætis veðri en lennti svo í úrhellisrigningu og skreið svo heim gegnblautur og kaldur. Mátti svosem búast við þessu en hélt að ég slyppi áður en hvessti. 03.11.2011 19:14Eyvindur með horÉg er alveg snilldar kokkur og þar sem ég fékk frjálsar hendur við matargerðina og Kristín að vinna enginn að fylgjast með hvað ég set ofan í mig, þá hafði ég lambakjöt með grjónum og karrýsósu í matinn. Þetta bragðaðist frábærlega og ekki mikið sem gekk af. Ég fór í dag upp á Akrafjall og gekk hring á fjallinu ca.15 km. hækkun er kringum 850 m. Ég var 3,5 tíma í göngunni. Ég setti tvær myndir af Geirmundartindi teknar austan við tindinn birtan var ekki mikil frekar þungbúið og rigning þegar á tindinum kom. Ég fór á námskeið í gær á vegum Norðuráls, fyrirfram hafði ég ekki mikla trú á þessu námskeiði en það var betra en ég vonaðist til. Það var farið yfir vinnubrögð og fleira. En eftir hádegið komu Jóhann Ingi Gunnarsson og Ásgeir Jónsson með fyrirlestra sem höfðuðu vel til mín. Þeir töluðu um hluti sem ég vissi og allir vita en það er gott að láta minna sig á. Jóhann talaði um samskipti og annað sem nýtist í vinnunni. Ásgeir talaði almennt um frístundir og hvernig að maður þarf að forgangsraða. En ég er búinn að vera í því dæmi nokkurn tíma ég er farinn að hugsa meira um sjálfann mig og það sem kemur mér best án þess að ganga á hlut annara. Fer að vinna á morgun og verð í vinnunni um helgina það er frábært nóg að gera og ekki skemmir ókeypis matur fyrir. 01.11.2011 12:27AthugasemdÞað er eitthvað að stjórnkerfinu á síðunni þannig að athugasemdir við síðasta blogg koma ekki fram. En ég vona að þetta lagist. Var að koma af Háahnjúk áðan frekar kalt og vindur, en bjart og gott göngufæri að öðruleyti. Þessi mynd er ekki tekin í dag. 30.10.2011 14:25HeimsóknÞau Daníel, Ásta Kristín og Gabríel stilla sér hérna upp til að sýna peysurnar sem amma þeirra prjónaði á þau. Það tók nokkurn tíma og mútur að fá þau til að vera kyrr en það tókst að lokum og ísbyrgðirnar rýrnuðu talsvert því fullorðna fólkið sem var statt þarna líka vildi ekki verða útundan. Annars er ég alltaf með hálfgerðann móral útaf þessari síðu, mér finnst að fyrst ég er með hana á annað borð hafi ég skyldu að setja eitthvað inná hana reglulega. En það er eins og það er dagarnir eru hver öðrum líkir og sumt sem maður er að hugsa er betra að hafa fyrir sjálfan sig og sína. Þess vegna er bloggið kannski eins og það er hjá mér. En ég ætla samt ekki að hætta þessu fólk hefur orðið það lítið samband að það getur allavega þvælst hérna inn og fylgst með sem er ágætt í sjálfu sér, en gaman væri að fá halló oftar og sjá hverjir fylgjast með.Farið vel með ykkur því þið gerið það bezt sjálf. 23.10.2011 18:37SunnudagurFór í göngu uppá Akrafjall seinnipartinn og ég fór fyrst inn Berjadalinn og svo til baka uppá fjallinu . Það var frekar kalt og það tók soldið í að labba í mosanum upp dalinn. Ég tók myndir á símann en sólin var komin heldur neðarlega. Í landanum var verið að tala um viðarkyndingu, kannski ættu Hólmvíkingar að spá í það nóg er af timbrinu í Strandasýslu en sennilega yrði það dýrt ef einhver vildi nýta það. 19.10.2011 12:47GangaFór áðan í göngu uppá Akrafjall það er mjög gott veður en skyggnið hefði mátt vera betra. Á þessari mynd sést inn í Hvalfjörð og fjallstopparnir eru ógreinilegir vegna birtuskilyrða. Golfvöllurinn og túnin eru ennþá græn. Í þetta sinn kom ég hérna ofanaf fjallinu, þetta er ofan við Rein töluvert bratt en gaman að renna sér í hlíðinni mynnir á gamla skíðatakta. 16.10.2011 19:00Gamlar myndirÉg var að fletta í gömlu albúmi og tók þessar myndir gæðin eru mjög léleg en ég vona að fólkið þekkist. Ég þyrfti að komast í að skanna myndir einhverntíma. Þessi er óskýr en hún varð að fylgja, reyni seinna að koma betri myndum inn. 16.10.2011 13:55HaustÉg fór norður fyrir helgi og kom til baka í gærkveldi, það spáði svo illa fyrir daginn í dag. Það er að koma vetur og samt er maður alltaf að vona að hann dragist eitthvað. Þetta er Stakkanes og haugurinn sem er búið að setja þarna þar sem brúin mun koma. Þarna er annar Saab uppi á gám neðan við Fyllingu. 05.10.2011 16:22BæjarlabbFór í dag hringferð um bæinn og tók nokkrar myndir og set þær inn á albúmið. Mig minnir að það sé annar svona Saab á Hólmavík. Hálfvitinn og vitinn Farið að grána í fjallinu. Óskar Úlfar og Brútus 04.10.2011 14:14Fjörulabb![]() Ég fór í göngutúr áðan og fór út á æðarodda. Ég tók nokkrar myndir og setti þær inná albúmið það er gaman að ganga þessa leið margt að sjá og þægilegt að ganga þetta .Þetta voru u.þ.b. 11 km. sem ég fór. ![]() Sjórinn kroppar sífellt meira í landið. (verst að geta ekki kennt rollunum um þetta) ![]() Heyrúlla í endurvinnslu. 01.10.2011 14:57MótmæliEr að hlusta á fréttirnar skil ekki þessa þingmenn. Hvað er að þessu liði skilja þeir ekkert hvað er í gangi, hvers vegna fólk er að missa þolinmæðina? Þeir sitja og og eru í einhverri morfis ræðukeppni og meina ekkert hvað þeir segja og reyna að teigja lopann og fela aðgerðarleysið og ráðaleysið í staðinn fyrir að taka á hlutunum. Svo benda þeir á hvor annann og allir þykjast saklausir af aðgerðarleysinu og málþófinu sem auðkennir íslenzka pólitík. Ég held að þetta haldi bara áfram svona og mismunun og óréttlæti í þjóðfélaginu haldi áfram því miður. Allavega er ekki skilningur fyrir því að margt fólk er orðið mjög örvæntingarfullt og reitt yfir hvernig stjónmálamenn fara með vald sitt. Svona smá í tilefni dagsins,farið vel með ykkur. Skrifað af Árni Magnús Flettingar í dag: 99 Gestir í dag: 4 Flettingar í gær: 375 Gestir í gær: 14 Samtals flettingar: 4535 Samtals gestir: 226 Tölur uppfærðar: 17.7.2025 08:55:28 |
Eldra efni
Nafn: Árni Magnús BjörnssonFarsími: 8623287Tölvupóstfang: arnimagnus@live.comAfmælisdagur: 11.08.1962Heimilisfang: Garðabraut 45 AkranesTenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is