Heimasíða Árna og Kristínar Skoðanir okkar. |
||
Færslur: 2012 Júlí31.07.2012 12:44Tattú og gangaJæja ekki öll vitleysan eins fyrst facebook nú tattú . Hvað næst? Við fórum á rúntinn eftir tattúið austur á Kirkjubæjarklaustur og daginn eftir uppað Langasjó og svo til Landmannalauga . Eftir dag á vegunum þarna er maður gjörsamlega búinn að fá nóg. Miðað við umferðina þarna mætti alveg leggja töluvert meiri pening í að laga vegina þarna uppeftir. Við fórum á Rauð þessa ferð og reyndist hann mjög vel nema hann mætti vera þéttari því það kemur alltaf svo mikið ryk inní hann. Einu tók ég eftir sem er að vísu líka norður í Árneshreppi það er tillitssemi ökumanna það virðist vera allt öðruvísi umferðarmenning á lélegum vegum en á malbikinu sem betur fer. Góð ferð þótt vegirnir mættu vera miklu betri. Skrifað af Árni Magnús 26.07.2012 22:32SumarfríiðJæja þá er sumarfríið langt komið og það var ansi fljótt að líða . En þá er bara að nýta vaktafríin vel og gera eitthvað. Er ekki í neinu stuði til að skrifa mikið þessa dagana svo þetta verður að duga. Farið vel með ykkur Skrifað af Árni Magnús 05.07.2012 08:41HamingjudagarÞuríður, Sigrún, Alla, Ragna, Ragga, Ásdís og Sólrún Það kom skemmtilega á óvart að hitta þennan myndarlega hóp á hamingjudögum, en ég stoppaði frekar stutt í hjallanum þar sem skemmtiatriðin voru. Og ég vona að allir hafi skemmt sér vel. Eins og vanalega þegar ég er fyrir norðan virðast allir dagar vera fullbókaðir hjá mér og það er alltaf nóg að gera. Er svo sem ekkert að kvarta þetta er það sem ég vil og kem mér í. Ég setti inn myndir frá helginni, Farið vel með ykkur og sýnið þolinmæði í umferðinni. Skrifað af Árni Magnús 04.07.2012 15:30FjallgangaVið frændurnir fórum í fjallgöngu í dag og varð Heiðarhorn fyrir valinu. Þetta var mjög góð ganga tók þrjá og hálfan tíma. Lentum í smá rigningu og svo var helvítis þoka þarna uppi, en niður komumst við aftur heilu og höldnu. Ég á eftir að setja inn myndir frá síðustu dögum en þær koma vonandi fljótlega. Skrifað af Árni Magnús
Flettingar í dag: 174 Gestir í dag: 12 Flettingar í gær: 693 Gestir í gær: 10 Samtals flettingar: 4235 Samtals gestir: 220 Tölur uppfærðar: 16.7.2025 19:40:27 |
Eldra efni
Nafn: Árni Magnús BjörnssonFarsími: 8623287Tölvupóstfang: arnimagnus@live.comAfmælisdagur: 11.08.1962Heimilisfang: Garðabraut 45 AkranesTenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is