Heimasíða Árna og Kristínar

Skoðanir okkar.

Færslur: 2013 Janúar

19.01.2013 10:17

Jæja





Þá er nú bara að bíða eftir næsta sumri svo við getum farið að gera eitthvað af viti þarna í skjólinu okkar. Þessi mynd var tekin þegar við vorum búnir að mála litla húsið okkar. Áttum svo sannarlega skilið að setjast aðeins niður og slappa af.

Ég setti könnun hérna á síðuna og hún segir allt sem segja þarf um þá sem kíkja hérna inn. Eitt atkvæði komið og ég greiddi það sjálfur.

Annars er lítið að frétta af okkur fórum í bústað um síðustu helgi og það var mjög gaman að hafa alla þá sem mér þykir vænst um nálægt mér á sama tíma, þetta er orðinn nokkuð stór og glæsilegur hópur sem við Kristín eigum og erum við mjög stolt af honum.

Ég held mínu striki í sambandi við hreifinguna ætla að halda áfram að ganga á fjöll og reyna að fara að hlaupa eitthvað líka. Eina vandamálið hjá mér er hvað mér finnst gott að borða mikið,og helst óhollt. En þetta kemur vonandi.

Annars farið vel með ykkur og hugsið um spurninguna mína .  

03.01.2013 09:58

2012

Ef maður ætlar að rifja eitthvað upp af því sem gerðist á síðasta ári er hætt við því að eitthvað gleimist .

Helstu punktar.

 Fjölskyldan. Það fjölgaði um tvær stúlkur á árinu og þau eru orðin 5 barnabörnin  þannig að                                   hópurinn er orðin 13 stykki alls.  

Vinnan.        Vinnan gengur vel byrjaði í námi sambandi við vinnuna fyrir ári það gengur vel. Og svo                      fékk ég stöðuhækkun í haust og mér líður vel í vinnunni.

Áhugamálin. Taka langmestan tímann. Öll markmið náðust með glans. Fyrir utan eitt. Sem var                                frestað.

Heilsan.       Hún er í góðu jafnvægi.

Skjólbrekka. Þetta er að verða alvöru. Erum búinn með grunninn og framhaldið verður skoðað með                       vorinu.

Þakklæti.    Ég er innilega þakklátur því fólki sem hjálpaði mér og vann með mér á árinu það er gott                     að vita til þess að þegar maður biður fólk um eitthvað eru allir tilbúnir að aðstoða mig                          eins og kostur er. 

2013           Verður í heildina gott og góður grunnur fyrir framtíðina.                                                                                                                                                                                         


  • 1
Flettingar í dag: 174
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 693
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 4235
Samtals gestir: 220
Tölur uppfærðar: 16.7.2025 19:40:27

Nafn:

Árni Magnús Björnsson

Farsími:

8623287

Afmælisdagur:

11.08.1962

Heimilisfang:

Garðabraut 45 Akranes

Tenglar