Heimasíða Árna og Kristínar

Skoðanir okkar.

Færslur: 2013 Desember

20.12.2013 11:01

Feministar

Það kemur mér alltaf á óvart hvað það fer fyrir brjóstið á mörgum þó einhverjar konur tjái sig um það að þeim fynnist kynjahlutfallið í stjórnum fyrirtækja og ríkisstofnana ekki rétt. Mitt álit er það að það á auðvitað að vera sem jafnast en samt verður alltaf að ráða hæfasta fólkið. Eins og störfin eru á Íslandi núna er ekki hægt að segja að þetta eða hitt sé kvenmanns eða karlmanns verk. Yfirleitt skiptir það ekki máli, karlmenn eru þó oft lunknari við að koma sér í léttari verk.
Farið vel með ykkur.

08.12.2013 21:44

Nóvember

Það er enn og aftur léti í mér í sambandi við skriftir hérna. En nóvember hefur verið svona frekar erfiður. Ég hef verið frekar slæmur í löppinni alltaf með einhverja verki ef ég passa mig ekki. En það að vera í öryggisskóm í vinnunni er ekki það besta fyrir bólgna fætur. Þar af leiðandi hef ég ekki farið margar ferðir uppá Akrafjall eða bara þrjár í nóvember. En ég hef reynt að ganga eitthvað á hverjum frídegi annaðhvort á brettinu eða úti.
Við Kristín fórum ekkert norður í nóv og það er ekki laust við að maður sé kominn með smá heimþrá. Svo er bara spurning hvort maður komist nokkuð fyrir jól, en það verður bara að koma í ljós.
Það var að koma rukkun fyrir þessa síðu fyrir næsta ár og er það mikil spurning hvort það sé nokkur ástæða til að borga hana þar sem ég er ekki nógu duglegur að sinna þessu bloggi. Það er svosum nóg sem ég gæti skrifað um en mínar skoðanir eru kannski betur geimdar hjá mér sjálfum.  Mér finnst að ég sé ekki eltast við skoðanir annara og nenni ekki alltaf að réttlæta það sem ég segi eða skrifa.




Gömul mynd

Nóg í bili,og farist ekki úr jólastressi.
  • 1
Flettingar í dag: 213
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 693
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 4274
Samtals gestir: 220
Tölur uppfærðar: 16.7.2025 20:01:29

Nafn:

Árni Magnús Björnsson

Farsími:

8623287

Afmælisdagur:

11.08.1962

Heimilisfang:

Garðabraut 45 Akranes

Tenglar