
Þessi mynd lýsir kannski svona sirka það sem ég hef verið að gera í haust. Hef reynt að ganga reglulega og svo var ég að safna skeggi sem ég gafst svo upp á vegna óhreininda uppi í vinnu en það var gaman að þessu og fólk horfði svona skringilega á mig þegar maður er öðruvísi en vanalega.
Það gengur allt svona sinn vanagang og er það sennilega ástæðan fyrir því hvað síðan breytist sjaldan. Svo náttúrulega fésbókin, ætla að fara að verða duglegri við að setja eitthvað hérna fyrir ykkur sem kíkið þó annað slagið.Farið vel með ykkur.