Best að setja smá yfirlit yfir árið 2018.
Þetta var ágætt ár svona í heildina. Ég var nokkuð heilsuhraustur fyrir utan hjartsláttartruflanirnar. Lítið um verki í liðum og ég gat komist það sem ég ætlaði mér í göngum og hjólatúrum.
Við fórum til Tenerife síðasta vetur það var alveg frábært að komast í hitann svona um háveturinn og það væri gott ef að maður kæmist á hverju ári svona í sólina. Við fórum líka til Mancester með Steina og Svölu á fótboltaleik. Fer næst á leik hjá Sunderland verður örugglega jafn gaman.
Sumarið var ágætt vorum með íbúð á Akureyri í viku. Haustið svona týpíst smalamennskur og göngur.