Heimasíða Árna og Kristínar Skoðanir okkar. |
||
15.01.2019 11:182018![]() Best að setja smá yfirlit yfir árið 2018. Þetta var ágætt ár svona í heildina. Ég var nokkuð heilsuhraustur fyrir utan hjartsláttartruflanirnar. Lítið um verki í liðum og ég gat komist það sem ég ætlaði mér í göngum og hjólatúrum. Við fórum til Tenerife síðasta vetur það var alveg frábært að komast í hitann svona um háveturinn og það væri gott ef að maður kæmist á hverju ári svona í sólina. Við fórum líka til Mancester með Steina og Svölu á fótboltaleik. Fer næst á leik hjá Sunderland verður örugglega jafn gaman. Sumarið var ágætt vorum með íbúð á Akureyri í viku. Haustið svona týpíst smalamennskur og göngur. Skrifað af Árni Magnús 13.09.2017 18:01PlastÉg fór um daginn í göngu um fjörurnar frá Bjarnanesi að Kaldrananesi. Það sem kemur mér á óvart hvað það er að koma mikið plastrusl í fjörurnar. Ég hélt satt að segja að menn væru orðnir svo meðvitaðir um að þetta hverfur ekki þó því sé hent í sjóinn.Því miður virðist að mest af þessu plasti komi frá fiskiskipum. Skrifað af Árni Magnús 23.06.2017 18:55Myndir úr símanumVar að setja inn myndir úr símanum mínum þannig að einhver hreifing er nú á síðunni hjá mér. Það hefur annars verið frekar rólegt hjá mér, ætlunin var að vera duglegri að hreifa mig þetta árið og reyna að borða hollari mat en það hefur ekki gengið alveg og maður rétt heldur í horfinu. Og seinni hlutinn á árinu verður þess vegna að taka alvarlegar í sambandi við hreyfingu og mataræði. Ég er búinn að vera í rannsóknum út af hjartsláttar óreglu en það hefur lítið komið út úr því, þetta er ekki hættulegt en háir mér þegar það er álag á mér og hef lítið getað reynt mikið á mig tildæmis í fjallgöngu og vinnu. Maður verður bara að gera hlutina rólegar og passa mig. Skrifað af Árni Magnús 22.12.2016 20:01Myndir 2016![]() Var að setja inn fullt af myndum. Svei mér þá ef við lögumst ekki bara með aldrinum. Skrifað af Árni Magnús 20.12.2016 21:592016Tímabært að skrifa eitthvað hérna það er búið að vera einhvern veginn
þannig að ég hef átt erfitt með það setjast niður að skrifa. Það er samt
af nógu að taka og líklega er stærsta stundin í ár þegar bættist í
barnabarna hópinn núna í haust. En þá eignaðist Bjössi dóttur. Við erum
svo sannarlega heppin. Ég ætla að skrifa eitthvað hérna næstu daga og setja inn einhverjar myndir ef ég kann það ennþá rifjast sjálfsagt upp. Einhverjir virðast kíkja á síðuna hjá mér og er ég hissa á því vegna þess hversu langt er síðan hún var uppfærð. Farið vel með ykkur. Skrifað af Árni Magnús 11.04.2016 19:15Frá vetrinum![]() Tekið við Þiðriksvallavatn Það er leiðinlegt hvað ég er latur við að setja inn myndir hérna og blogga um hvað við erum að gera. Ég hef kannski þá afsökun að ég hafi svo mikið að gera og hafi ekki tíma og ætla að nota hana . (þessi afsökun heldur náttúrulega ekki vatni) Ég setti inn myndir sem hafa verið að safnast upp í símanum frá því í haust úr ýmsum áttum. Vonandi skýra þær sig sjálfar ef ekki þá er bara að spyrja og ég svara kannski. Annars hefur þessi vetur verið fljótur að líða og er það merki þess að ég er að eldast árin setjast á mig og maður finnur það á skrokknum sem er alltaf stirður og lengur að ná sér eftir alla hreifingu. Við keyptum íbúð í janúar, þetta er gömul íbúð og við rifum allt út úr henni og brutum nokkra veggi og höfum verið að gera hana þannig að hún hennti okkur. ![]() Tekið 23. mars á Akrafjalli Skrifað af Árni Magnús 11.11.2015 17:24MyndirSetti inn í mynda albúmið myndir af símanum og myndavélinni. Ég var ekkert að ritskoða myndirnar setti þetta svona hrátt inn. ![]() Skrifað af Árni Magnús 13.08.2015 20:5613. ágústVar að fá nýann síma og var að prófa hann. Myndirnar úr honum eru mun betri en úr gamla símanum og ég geri ráð fyrir að ég eigi eftir að nota hann óspart við myndatökur eins og þann gamla. Sumarfríið var fljótt eins og undanfarin ár og vorum við á töluverðum þvælingi um landið og hefðum gjarnan viljað vera lengur á ferðalagi en hitastigið á landinu bauð ekki beint uppá það. Skrifað af Árni Magnús 03.05.2015 09:333. maiMaturinn minn er búinn að vera líkur þessu oft í vetur. Ég var að setja inn myndir, samansafn frá vetrinum. Annars er allt gott af okkur að segja, það sem við höfum verið að gera og plana hefur allt gengið upp enda ekki við öðru að búast þegar varlega er farið. Skrifað af Árni Magnús 19.02.2015 20:06VeturMikið er ég orðinn þreittur á vetrinum. Hvað er þá betra en setja sumarlega mynd af þessum fallegu og duglegu stelpum til að fá mann ![]() Skrifað af Árni Magnús Flettingar í dag: 3 Gestir í dag: 2 Flettingar í gær: 49 Gestir í gær: 2 Samtals flettingar: 52 Samtals gestir: 4 Tölur uppfærðar: 29.6.2025 00:58:18 |
Eldra efni
Nafn: Árni Magnús BjörnssonFarsími: 8623287Tölvupóstfang: arnimagnus@live.comAfmælisdagur: 11.08.1962Heimilisfang: Garðabraut 45 AkranesTenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is