|
Heimasíða Árna og Kristínar Skoðanir okkar. |
||
08.08.2011 14:52Fréttir eða ekkifréttirÞegar ég var að koma heim úr vinnunni í morgun hlustaði ég á rás tvö. Það var verið að tala við konu sem er í forsvari fyrir hagsmunasamtök heimilanna þau eru að vinna fyrir afnámi verðtryggingarinnar og það er undirskriftalisti í gangi og skora ég á fólk að kynna sér málefnið og taka afstöðu því það er verið að fara mjög illa með okkur.Húsnæðislánin hækka og hækka en eignarhlutinn í húsnæðinu minnkar um tugi þúsunda um hver mánaðamót. Ég er að tala um venjuleg húsnæðislán í alíslenskum krónum eitthvað sem maður hélt að mætti treysta. Ég er oft að hugsa hvað maður geti gert hvaða valmöguleikar séu í boði en það virðast allir bankarnir að húsnæðisstofnun meðtalinni vera í sama skítnum. Verst af öllu er það hvað fólk lætur sér þetta litlu varða ótrúlegt hvað við látum fara illa með okkur skil ekki þennann þrælsótta í þessari þjóð.Menn eins og ég tuða en svo þegar til kastanna kemur koðnar allt niður og maður gerir ekkert í málinu. En að öðru þetta stjórnlagaráð djöfulli sé ég eftir peningunum sem fóru í það þvílíkt samansafn að jáfólki sem var þarna saman komið. Sama hvaða helvítis vitleysa kom þarna fram allt samþykkt með málamiðlunum sem eru ekki bót sama hvað málið er vitlaust. Td. persónukjör og að takmarka kjör forseta við þrjú kjörtímabil. Hvaða máli skiptir það hvað forsetinn er mörg kjörtímabil það er kosið á fjögura ára fresti og ef það er eitthvað betra í boði kjósum við það en allavega þetta er tapað fé, betra hefði verið að senda þetta lið til eyja að frysta makríl eða eitthvað álíka enda megnið af þessu liði lifað á að tala úr sér vitleysuna alla æfi.(Kannski fullyrðing sem ég get ekki staðið við) Jæja þá er ég búinn að tuða nóg í bili. Annars er ég bara góður allt í lukkunnar velstandi fer að vinna næst á föstudag. Er farinn út í góða veðrið þið ættuð að gera það líka. Flettingar í dag: 943 Gestir í dag: 52 Flettingar í gær: 360 Gestir í gær: 38 Samtals flettingar: 134445 Samtals gestir: 10809 Tölur uppfærðar: 6.5.2026 04:10:40 |
Eldra efni
Nafn: Árni Magnús BjörnssonFarsími: 8623287Tölvupóstfang: arnimagnus@live.comAfmælisdagur: 11.08.1962Heimilisfang: Garðabraut 45 AkranesTenglar |
|
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is