|
Heimasíða Árna og Kristínar Skoðanir okkar. |
||
02.02.2012 21:02Lífshlaupið![]() Geirmundartindur 2 feb Ég er búinn að skrá mig í lífshlaupið og er þar með búinn að skuldbinda mig hreyfa eitthvað á hverjum degi næstu þrjár vikurnar. Ég er skráður í liðið c vakt hjá Norðurál og við ætlum að vera virkir í þessu og vonandi klikkar enginn. Stundum er ég að skipta mér af hlutum sem mér koma ekki beint við en samt get ég ekki þagað ef mér finnst það sé verið að mismuna fólki, það eru stundum að koma þannig mál sem ég sé og mér er stundum misboðið hvernig hlutirnir eru og látnir viðgangast. En það eru greinilega skiptar skoðanir sem er ágætt í sjálfu sér en mér finnst að það þurfi að vera rök fyrir því ef mismunun á sér stað sambandi við vinnu t.d. heilsuleysi eða eitthvað álíka. Því ef menn eru á sömu launum eiga menn að vinna álíka mikla vinnu ekki satt.Jæja það skilur kannski engin hvað ég er að fara með þessu en það er best að skauta kringum þetta. Það er skrítið hvað tíminn er fljótur að líða, daginn farið að lengja og það munar frá degi til dags hvað birtan er meiri. Ég náði að fara 15 sinnum uppá Akrafjall í janúar sem er mikið meira en ég taldi að væri hægt en það hefur oft verið varasamt vegna hálku. Farið vel með ykkur. Skrifað af Árni Magnús Flettingar í dag: 1771 Gestir í dag: 53 Flettingar í gær: 360 Gestir í gær: 38 Samtals flettingar: 135273 Samtals gestir: 10810 Tölur uppfærðar: 6.5.2026 06:07:01 |
Eldra efni
Nafn: Árni Magnús BjörnssonFarsími: 8623287Tölvupóstfang: arnimagnus@live.comAfmælisdagur: 11.08.1962Heimilisfang: Garðabraut 45 AkranesTenglar |
|
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is