Heimasíða Árna og Kristínar

Skoðanir okkar.

25.09.2011 07:20

Smölun og fleira




Við fórum að smala um síðustu helgi og tókum gott labb þessa þrjá daga og svo voru réttir á sunnudeginum. Við Kristín hjálpuðum svo við að vikta lömbin á mánudaginn. Ég set inn myndir þegar ég hef tíma og nennu til þess. En það virðist alltaf nóg að gera sem er gott að öðru leyti en því að tíminn er fljótur að fljúga frá manni.En samt sem áður þetta er gaman ekki hægt að segja annað.
Við komum aftur hingað norður seinnipartin á föstudag og dagurinn í gær fór í það laga rafmagnssnúrur og setja upp rofa sem ég hef ekki haft tíma til að ganga frá. Svo náði ég einum golfhring í síðdegislogninu fyrir matinn.





Þessi rjúpa er búinn að vera að vappa hérna í kring og er mjög róleg þó maður sé að þvælast kringum hana, sennilega eru þetta bara heimskir fuglar að forða sér ekki. Jæja nóg í bili.

07.09.2011 16:30

Hreyfing




Þetta er mynd sem ég tók þegar ég fór uppá Heiðabæjarheiði. Og fjallið heitir Tindur sem er á myndinni. Annars hef ég verið duglegur að ganga undanfarið og er orðinn góður eftir aðgerðina sem ég fór í.



Við erum að hugsa hvað við gerum í stækkunarmálum í sambandi við Skjólbrekku erum ekki alveg ákveðin hvernig við gerum þetta kannski frestast það eitthvað að stækka kemur í ljós í vetur. En í rauninni liggur ekkert á þannig séð.
Jæja gott í bili langar að skrifa um pólitík en það er svo mikil vitleysa í gangi að ég nenni ekki að velta mér uppúr því.

01.09.2011 20:21

Halló




Þessi mynd var tekin af okkur í sumar þegar við tókum pásu frá málingarvinnunni.Bara flottir er það ekki. Annars er lítið að frétta er farinn að vinna aftur og fór á Akrafjallið á þriðjudag bara létt ganga.
Svo næturvaktir um helgina. Hef ekkert að skrifa um allavega ekkert sem birta má. Farið vel með ykkur.

27.08.2011 21:08

Ber




Það er stutt að fara hjá mér til að fá ber útá skyrið. Annars eru berin ekki alveg tilbúin frekar smá og mikið af vísurum en það er ágætis berjaspretta bara seint á ferðinni vonandi að það geri ekki frost á næstunni. Það er búið að vera mjög gott veður þessa daga og bara rólegheit.

24.08.2011 20:55

Kominn norður




Þá er ég kominn norður aftur og svo er nú bara spurningin hvað ég sé að þvælast hingað núna . En eitthvað varð ég að gera ekki nennti ég að hanga lengur aðgerðarlaus. Ætla að ganga frá lausum endum hérna í Skjólbrekku.
Núna er að koma fram nýr flokkur sem ég vona að verði raunverulegur valkostur í næstu alþingiskosningum.Guðmundur hefur tvö ár til að sýna hvað í honum býr og velja fólk til að vinna að þessu framboði. Alla vega eru nógu margir kjósendur óákveðnir og því ætti að vera svigrúm til framboðs. Svo er bara að fylgjast með og vona það besta.
Í útvarpinu í morgun var verið að tala við formann félags fasteignasala og tók hún undir að verðtryggingin væri óréttlát og betra væri að hafa fasta vexti. Var hún að átta sig á þessu núna eða þóttist hún ekkert vita ?

20.08.2011 20:51

Fljótfærni



Ég var að fikta í stillingunum hérna á síðunni og þurrkaði út flest allar myndirnar hérna á forsíðunni. Svona er það maður á ekki að gera það sem maður hefur ekki vit á allavega hefði ég átt að lesa mér til áður. Annars er rólegt hjá mér þessa dagana, ég fór í aðgerð á fimmtudag og á að taka það mjög rólega næsta hálfa mánuðinn og það tekst svona og svona. Og svo fæ ég það í bakið þegar líður á daginn. Ég fór í bæinn í morgun að fylgjast með Steina og Svölu þau hlupu hálfmaraþon og það var gaman að fylgjast með þeim enda er alveg til fyrirmyndar hvað þau eru að standa sig vel.
Svo eftir hádegi fór ég hérna út á fótboltavöll að sjá leik með Kára var að vona að Almar frændi væri að spila því mér finnst hann góður knattspyrnumaður og gaman að fylgjast með honum, en hann var því miður ekki með enda tapaði Kári 3 -0 .Annars er leiðinlegt að fara hérna á völlin með börn því orðbragðið sem leikmenn og áhorfendur viðhafa er hræðilegt og ég þakka fyrir að Daníel át ekkert upp af því sem hann heyrði þarna. Þetta þarf að laga allavega er ég hissa á því hvernig í ósköpunum er hægt að manna stöður dómara og línuvarða á þessum leikjum enda eru þetta bara venjulegir menn sem eru að reyna að gera sitt besta. Nóg í bili farið vel með ykkur.

11.08.2011 18:43

Bara gaman




Ég setti inn myndir af gönguferðum hjá mér þrjá síðustu daga. Á þriðjudag fór ég norður og eru myndirnar þann dag fram að myndinni teknar af makrílnum vaðandi fyrir utan Hrófberg. Flestar myndirnar þann dag eru teknar ofan við Bólstað, hinar skýra sig sjálfar.
Í gær fór ég norður í Bjarnarfjörð og gekk uppá Hólsfjall og myndirnar þann dag enda á feðgunum á Hilmi ST.
Í dag fór ég upp hjá Heiðarbæ og gekk upp á Tindinn og aðeins framan við hann fór ég niður hlíðina tók myndir  þar sem ég fór niður doldið bratt en hættulaust. Á bakaleiðinni kom ég niður Miðdalin og kom við hjá Finnu sem átti víst ekki von á mér gangandi þessa leið.

08.08.2011 14:52

Fréttir eða ekkifréttir



Þegar ég var að koma heim úr vinnunni í morgun hlustaði ég á rás tvö. Það var verið að tala við konu sem er í forsvari fyrir hagsmunasamtök heimilanna þau eru að vinna fyrir afnámi verðtryggingarinnar og það er undirskriftalisti í gangi og skora ég á fólk að kynna sér málefnið og taka afstöðu því það er verið að fara mjög illa með okkur.Húsnæðislánin hækka og hækka en eignarhlutinn í húsnæðinu  minnkar um tugi þúsunda um hver mánaðamót. Ég er að tala um venjuleg húsnæðislán í alíslenskum krónum eitthvað sem maður hélt að mætti treysta. Ég er oft að hugsa hvað maður geti gert hvaða valmöguleikar séu í boði en það virðast allir bankarnir að húsnæðisstofnun meðtalinni vera í sama skítnum. Verst af öllu er það hvað fólk lætur sér þetta litlu varða ótrúlegt hvað við látum fara illa með okkur skil ekki þennann þrælsótta í þessari þjóð.Menn eins og ég tuða en svo þegar til kastanna kemur koðnar allt niður og maður gerir ekkert í málinu.
En að öðru þetta stjórnlagaráð djöfulli sé ég eftir peningunum sem fóru í það þvílíkt samansafn að jáfólki sem var þarna saman komið. Sama hvaða helvítis vitleysa kom þarna fram allt samþykkt með málamiðlunum sem eru ekki bót sama hvað málið er vitlaust. Td. persónukjör og að takmarka kjör forseta við þrjú kjörtímabil. Hvaða máli skiptir það hvað forsetinn er mörg kjörtímabil það er kosið á fjögura ára fresti og ef það er eitthvað betra í boði kjósum við það en allavega þetta er tapað fé, betra hefði verið að senda þetta lið til eyja að frysta makríl eða eitthvað álíka enda megnið af þessu liði lifað á að tala úr sér vitleysuna alla æfi.(Kannski fullyrðing sem ég get ekki staðið við)
Jæja þá er ég búinn að tuða nóg í bili.
Annars er ég bara góður allt í lukkunnar velstandi fer að vinna næst á föstudag. Er farinn út í góða veðrið  þið ættuð að gera það líka.

05.08.2011 16:54

Gömul mynd

Jæja ég á mér ca. 25 fasta aðdáendur hérna á síðunni og ég þakka fyrir það ég veit að vísu ekki mikið hverjir það eru en það verður að sinna gestunum. Ég hef verið að taka myndir af myndum (þarf að fá mér skanna) Þessa tók ég úr bæjarættarbókinni Talandi um verndun gamalla húsa.



Gaman hefði verið ef þessi hús hefðu verið vernduð á sínum tíma en þeirra tími var sjálfsagt kominn.

30.07.2011 21:41

Skjólbrekka




Þegar við mættum hingað norður var þetta skilti við útidyrnar. Það er framleitt af henni Ásdísi Jónsdóttur og kann ég henni bestu þakkir fyrir það enda er hún snillingur.
Þetta var hálf skrítinn dagur í dag hann var svo fljótur að líða, td. hringdi ég í Bigga frænda og var háfhræddur um að ég væri að vekja hann en ég áttaði mig ekki á því að klukkan var orðinn hálf tvö. Seinni partinn fórum við að veiða uppá vatni og Kristín veiddi silung en ég varð ekki var. Silungurinn bragðaðist svo mjög vel en við höfðum hann í forrétt  á undan grillkjötinu.
Það er búið að vera mjög gott veður í dag og brann ég á skallanum enn eina ferðina, þarf að fara að fá mér derhúfu. Annars heyrist mér á veðurspánni að ég þurfi ekki að hafa áhyggjur af sólbruna á næstunni. 

25.07.2011 19:48

Framtaksleysi

Ég veit ekki hvort ég geti sagt að ég sé framtakslaus allavega er ég að gera fullt af hlutum sem mig hefur langað til að gera. En samt er ég alltaf að trassa eitthvað sem ég ætlaði að vera búinn að gera. Ég ætlaði að vera duglegur að skrifa hérna, en má einhvern veginn ekki vera að því sem ég skil ekki því nógur er tíminn og kannski þarf æfingu í þessu eins og öðru. Ætli þetta sé ekki í og með hræðsla um að það hljómi fíflalega það sem maður skrifar. Jæja hætti að bulla.
Við vorum á ferðinni um og fyrir helgina og svo fór ég í fjallgöngu með Nonna á Berginu og þið sem sáuð myndirnar og myndbandið hjá honum getið rétt ímyndað ykkur hvað mér fannst þetta gaman en brosið er enn á mér. Þetta var ekki mjög erfið ganga en sums staðar soldið klifur og príl. Á nokkrum stöðum fannst mér þetta varasamt og ekki hefði ég farið einn þar sem brattast var heldur bara snúið við enda ókunnugur þarna. En samt þetta var FRÁBÆRT.
Ég setti inn myndir hjá mér og svo eru fullt af myndum hjá Jóni.











 

Setti inn tvær gamlar myndir sem ég ljósmyndaði svona til að prófa hvort þetta sé hægt.

14.07.2011 20:06

Til umhugsunar



Þetta er Gullborgin nýmáluð og fín,gaman hefði verið að Hilmir hefði fengið svona meðferð en sennilega er þar sinnuleysi um að kenna.
Annars að öðru ég hef verið að hugsa um það hvað allt er orðið skrítið í þessu þjóðfélagi. Það...............................  Ég var búinn að skrifa helling en ákvað þurrka það út kemur seinna.

05.07.2011 14:25

Heiðarhorn




Þennann fjallstind sé ég útum eldhúsgluggann hjá mér, og þegar það er gott veður dreymir mig um að fara þarna upp og það gerði ég áðan.Þetta er Heiðarhorn og er 1053 metrar á hæð. Þetta var í annað sinn sem ég fer þarna upp , fór í fyrra líka og er ekki málið að fara þetta árlega, til sextugs.







Þetta er Skessuhorn séð af Heiðarhorni


01.07.2011 22:44

Plank á Hamingjudögum

Þá eru það hamingjudagar fórum að kíkja á dagskrána í kvöld og þar var hópplank sem ég tók þátt í og ætli það hafi ekki verið sett íslandsmet vona það.





Það var komið töluvert af fólki og ágætisveður þannig að þetta lítur bara vel út.





Daníel er með okkur og hann er eins og heima hjá sér þarna á Klifstúninu prílar og hleypur um og skemmtir sér.

29.06.2011 11:16

Fundur

Það er fundur hjá verkalýðsfélagi Akraness í kvöld um kjaramál hjá Norðurál. Ég kemst ekki vegna þess að ég er að vinna, en ég vona samt að allir sem eiga þess einhvern kost mæti. Það hlítur að vera erfitt fyrir forystu okkar að vinna fyrir okkur í kjaramálum ef  fólk sér ekki sóma sinn í því að mæta á fundi þegar svona mikið er undir og sýna samstöðu.
Ég er búinn að vinna hjá NA. í 6 ár og hefur líkað það ágætlega og er þetta nokkuð fjölbreytt vinna stundum erfið oftast svona la la. Ég hef reynt að vera svona jákvæður fyrir vinnunni þarna og ekki verið að velta mér uppúr því neikvæða sem er vissulega til staðar enda stór vinnustaður.
En það þarf að semja um laun sem eru sanngjörn og sambærileg við aðrar stóriðjur hérna. Það er ekki hægt að segja það að það sé verið að borga góð laun ef uppistaðan í laununum er yfirvinna og bónusar. Það eru álagslaun sem eru ósanngjörn í eðli sínu og ættu ekki að þurfa að vera. Ef það er þannig að ekki er hægt að vinna það sem þarf að vinna á venjulegum vinnutíma þarf að ráða fleira fólk ekki auka álagið á þá sem fyrir eru, enda bitnar aukið álag oft misjafnlega á fólki því miður og svo hefur þetta áhrif á heilsu fólks til lengri tíma. EN ALLIR AÐ MÆTA 'A FUNDINN .
Annars er allt gott að frétta af mér ég er búinn með sumarfríið og kominn á fullu í vinnunni.
Fór á Akrafjall í morgun soldið kalt en í lagi miðað við mars ekki júní.
Farið vel með ykkur það gerir enginn annar betur.
Flettingar í dag: 39
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 375
Gestir í gær: 14
Samtals flettingar: 4475
Samtals gestir: 226
Tölur uppfærðar: 17.7.2025 08:12:08

Nafn:

Árni Magnús Björnsson

Farsími:

8623287

Afmælisdagur:

11.08.1962

Heimilisfang:

Garðabraut 45 Akranes

Tenglar