Heimasíða Árna og Kristínar Skoðanir okkar. |
||
Blog records: 2012 N/A Blog|Month_328.03.2012 16:27MottumarsÞetta er nú á léttu nótunum var að setja inn myndir af sjálfum mér gera mig að fífli. ![]() Var að raka af mér skeggið í áföngum, spurning hvort maður ætti að hafa svona til framtíðar. ![]() Gerði það fyrir Kristínu svona í tilefni dagsins að raka mig .Farið vel með ykkur Written by Árni Magnús 18.03.2012 16:14Hitt og þettaÞetta er svona dagur milli næturvakta sem ég kalla ónýtann dag, þannig séð hann fer í svefn og höfuðverk og bið eftir seinni vaktinni. En svona er þetta ég verð kominn í frí á morgun. Fjórir dagar sem ég verð að nýta vel, því eftir næstu törn fer ég í vetrarfrí. Og uppúr því verður vonandi komin betri tíð og fleiri fjöll sem hægt er að troða á með skítugum skónum. Ég er byrjaður að skoða í bókum og landakortum fjöll og gönguleiðir sem ég ætla að fara í sumar en það verður sennilega farið víðar en undanfarin ár. En samt ætla ég ekki að missa mig í þessu frekar en öðru. Kristín verður fullorðin eftir tíu daga og ég er alveg lens hvað á að gefa henni. Hvað gefur maður eiginlega konu sem á mann eins og mig, hvers þarfnast hún eiginlega meira ? DJÓKUR Jæja var að spá i að þurrka þetta út en læt það vera. Kannski koma einhverjar hugmyndir.
Written by Árni Magnús 13.03.2012 18:57Mars![]() Við renndum norður um helgina þar sem við vorum bæði í fríi. Það er skemmst frá því að segja að það var leiðinda veður mest alla helgina en svona er þetta ekkert við því að gera. Við tókum nokkrar myndir og eru þær komnar inná albúmið. Ég mun skrifa skýringar við myndirnar við tækifæri. Annars er lítið að gerast núna það er búið að vera eitthvað þreituslen á mér og stundum þarf ég að beita mig hörðu að koma mér af stað en ég vona að þetta fari að lagast. Written by Árni Magnús
Today's page views: 342 Today's unique visitors: 19 Yesterday's page views: 49 Yesterday's unique visitors: 34 Total page views: 30133 Total unique visitors: 2076 Updated numbers: 14.9.2025 13:06:37 |
Archive
Name: Árni Magnús BjörnssonCell phone: 8623287Email: arnimagnus@live.comBirthday: 11.08.1962Address: Garðabraut 45 AkranesLinks |
© 2025 123.is | Signup for 123.is page | Control panel