|
Heimasíða Árna og Kristínar Skoðanir okkar. |
||
Blog records: 2013 N/A Blog|Month_701.07.2013 23:50Tíminn líðurÞað er töluvert mikið að gera hjá mér þessa dagana og ég tek ekki alltaf eftir því hvað líður tímanum. Þess vegna líður stundum langur tími milli þess sem ég skrifa hérna allt í lagi með það. Núna er árið u.þ.b. hálfnað og það er töluvert miklu sem ég hef áorkað þó stundum fynnist mér ég hjakka í sama farinu en ef litið er til baka er þetta bara þó nokkuð. Kristín og ég erum búinn að vera að vinna í lóðinni hérna í Skjólbrekku og nú er bara að bíða eftir að gróðurinn fari að taka við sér. Hamingjudagar voru hérna um helgina og það var fullt hús hjá okkur mest alla helgina og það hefði samt örugglega verið hægt að bæta við fleirum í kaffi. Ég tók þátt í hamingjuhlaupinu og fór 6 km. það var farið frekar rólega og það hentaði mér bara ágætlega, en þetta var í firsta sinn sem ég tók þátt í svona hlaupi og ég held að ég eigi eftir að hlaupa með þessu fólki aftur seinna. Þegar ég settist niður til að blogga var svo mikið sem ég ætlaði að skrifa um en núna man ég ekki eftir meiru. Hafið það gott næsta blogg verður vonandi fyrir mánaðarmótin. Written by Árni Magnús
Today's page views: 89 Today's unique visitors: 13 Yesterday's page views: 970 Yesterday's unique visitors: 8 Total page views: 89698 Total unique visitors: 6870 Updated numbers: 2.2.2026 06:28:53 |
Archive
Name: Árni Magnús BjörnssonCell phone: 8623287Email: arnimagnus@live.comBirthday: 11.08.1962Address: Garðabraut 45 AkranesLinks |
|
© 2026 123.is | Signup for 123.is page | Control panel