|
Heimasíða Árna og Kristínar Skoðanir okkar. |
||
Blog records: 2013 N/A Blog|Month_311.03.2013 19:39Hlaðið batteríin![]() Við fórum norður um helgina og Kristín skellti sér á góugleði og tók nokkrar myndir af gleðinni og glæsilegu borðinu með matnum og það hef ég eftir mjög ábyggilegum heimildum að maturinn bragðaðist frábærlega . Og eru Hólmvíkingar heppnir að eiga þau Kidda og Báru að til þess að matreiða ofaní sig. ![]() Á sunnudaginn fórum við smá rúnt norður í Bjarnarfjörð og það er leiðinlegt að sjá það að útihúsin á Kaldrananesi eru byrjuð að fjúka í burtu. Og sama má víst segja um útihúsin í Odda. Það er mjög leiðinlegt að sjá þetta. ![]() Það var nýlega búið að þrífa laugina og mikið sáum við eftir því að hafa ekki haft með okkur sundföt Það er gott að vita til þess hvað er hugsað vel um laugina þarna sjálfsagt mest í sjálfboðavinnu. Written by Árni Magnús 03.03.2013 21:11Mars![]() Þar sem ég ætla ekki að gera henni frú Kristínu þann óleik að fara að safna mottu þetta árið. Þess vegna læt ég þessa mynd af mér hérna á síðuna. Það eru nokkrar ennþá verri myndir af mér inni á albúminu síðan í fyrra, og þið skuluð láta það vera að skoða þær. Þetta er búin að vera frekar róleg helgi, er samt búinn að fara tvisvar upp á Akrafjall á sitthvorn tindinn. Ég hefði svo sem mátt vera duglegri td. getað þrifið bílinn og svoleiðis kjaftæði en skorti áhugann á því. Maður verður nefnilega að fara vel með sig því maður veit ekkert hvaða eiturefni eru í þessum þvottaefnum. (góð afsökun ) Written by Árni Magnús
Today's page views: 1250 Today's unique visitors: 14 Yesterday's page views: 970 Yesterday's unique visitors: 8 Total page views: 90859 Total unique visitors: 6871 Updated numbers: 2.2.2026 08:28:54 |
Archive
Name: Árni Magnús BjörnssonCell phone: 8623287Email: arnimagnus@live.comBirthday: 11.08.1962Address: Garðabraut 45 AkranesLinks |
|
© 2026 123.is | Signup for 123.is page | Control panel